Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2026 10:32 Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, og Donald Trump, forseti. Trump hefur talað mikið um það að halda Hormuz-sundi opnu fyrir olíuflutninga, til að draga úr hækkunum á olíuverði vegna stríðsins gegn Íran. AP/Jacquelyn Martin Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur.
Ráðherrann hélt því fram í tísti í gær að sjóher Bandaríkjanna hefði fylgt olíuflutningaskipi gegnum Hormuz-sund. Það hefði verið gert til að tryggja hefðbundið flæði olíu á mörkuðum. Strax í kjölfarið féll olíuverð hratt og verðbréfamarkaðir tóku kipp upp á við, eins og bent er á í frétt Wall Street Journal. Þegar mest var hafði verð olíu í Bandaríkjunum lækkað um nítján prósent. Tístið hvarf þó nokkrum mínútum síðar þar sem það reyndist rangt. Talsmaður orkumálaráðuneytisins sagði starfsmann hafa skrifað rangan texta við tístið og því hefði það verið fjarlægt. Verið væri að skoða ýmsar leiðir til að opna Hormuz-sund, þar á meðal þá leið að fylgja olíuflutningaskipum með herskipum. Olíuverðið hækkaði aftur en náði ekki sömu hæðum. Dow Jones-vísitalan hafði hækkað um eitt prósent í gær en endaði viðskiptadaginn á því að hafa lækkað um 0,1 prósent. Forsvarsmenn eins fjárfestingasjóðs segjast hafa tapað 84 milljónum dala á tísti Wrights. „Þetta er ófyrirgefanlegt,“ sagði einn þeirra við WSJ. U.S. Secretary of Energy Chris Wright claimed this morning, in a now deleted post, that the U.S. Navy had successfully escorted an oil tanker through the Strait of Hormuz, with the post being removed only minutes later and officials denying to Fox News that the Navy had carried… pic.twitter.com/zC8meHocpV— OSINTdefender (@sentdefender) March 10, 2026 Karoline Leavitt, talskona Donalds Trump, staðfesti fljótt eftir að tísti Wrights var eytt að engu olíuflutningaskipi hefði verið fylgt gegnum sundið. Í kjölfarið sagði hún Trump staðráðinn í því að halda sundinu opnu. .@PressSec on the success of Operation Epic Fury: "Ten days in, this campaign has been a resounding success thus far, and America's warriors are winning this important fight at an even faster pace than we anticipated."— More than 5,000 enemy targets stuck — Iran's ballistic… pic.twitter.com/4PG0OhQy4w— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) March 10, 2026 Hormuz-sund er þó ekki opið. Rúmlega fimmtungur olíu og jarðgass heimsins fer um Hormuz-sund en þar að auki fara fjölmörg flutningaskip um svæðið. Siglingar þar í gegn hafa verið mjög takmarkaðar síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir sínar á Íran fyrir um tólf dögum síðan. Ráðamenn í Íran hafa heitið því að leyfa ekki siglingar olíuflutningaskipa um sundið vegna árásanna. Áhafnir fjölmargra skipa bíða sitt hvoru megin við sundið en ráðist var á að minnsta kosti þrjú þeirra í nótt. Eldur kviknaði um borð í einu, eftir að það virðist hafa orðið fyrir annaðhvort eldflaug eða dróna, og þurfti áhöfnin að yfirgefa skipið. Erfitt og dýrt að fylgja skipum Það að fylgja olíuflutningaskipum gegnum Hormuz-sund með herskipum þykir sérfræðingum ekki líklegt til árangurs. Það myndi setja bandarísk herskip, sem eru þegar notuð til að verja tvö flugmóðurskip á svæðinu, í mikla hættu og jafnvel auka líkurnar á árásum á olíuflutningaskip. Hormuz-sund er mjög þröngt og gefur írönskum hermönnum færi á að beita ýmsum vopnum gegn skipum sem fara þar um. Þeir geta notað eldflaugar, hefðbundið stórskotalið og tundurdufl, svo eitthvað sé nefnt. Íran Í samtali við Economist segja nokkrir sérfræðingar að það myndi reynast Bandaríkjamönnum mjög erfitt og dýrt að fylgja skipum gegnum sundið og tryggja öryggi þeirra. Þá benda þeir meðal annars á það að herskip séu að sumu leyti viðkvæmari en olíuflutningaskip. Þau síðarnefndu séu til að mynda búin skrokkum og á árum áður hafi herskipum verið siglt á eftir olíuflutningaskipum þar sem hætta er vegna tundurdufla. Þá nefna sérfræðingarnir að Hútar hafi lokað skipasiglingum um Rauðahaf í fyrra. Þá gerðu Bandaríkjamenn árásir sem ætlað var að opna fyrir siglingar þar aftur en það reyndist erfitt. Árásirnar enduðu með einskonar vopnahléi en siglingar um Rauðahaf hafa ekki náð sömu hæðum aftur. Hútar heita því nú að hefja aftur árásir vegna árásanna á Íran.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Skipaflutningar Mest lesið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Viðskipti erlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Trump hækkar tolla á öll lönd Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Einn stofnenda ASOS fannst látinn Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Hefja aftur viðræður við Paramount ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Sjá meira