„Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 07:32 Federico Valverde hylltur af liðsfélögum sínum Vinicius Junior og Brahim Diaz eftir að hann innsiglaði þrennu sína. Getty/Juan Manuel Serrano Arce Federico Valverde var maður gærkvöldsins í Meistaradeildinni eftir stórbrotna frammistöðu í 3-0 sigri Real Madrid á Manchester City.
22 mínútna þrenna Valverde í fyrri hálfleiknum á Bernabéu-leikvanginum sá til þess að Real Madrid er með þriggja marka forskot fyrir seinni leikinn í sextán liða úrslitum í Manchester í næstu viku. Úrúgvæski landsliðsmaðurinn er fyrsti miðjumaðurinn til að skora þrennu fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni og tvöfaldaði um leið markafjölda sinn í keppninni. Enginn galli á honum „Ég held að hann sé vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins og hafi verið það í mörg ár,“ sagði liðsfélagi hans, Trent Alexander-Arnold, við CBS eftir leikinn. „Jafnvel áður en ég kom hingað dáðist ég mikið að leik hans. Það er enginn galli á honum, það er ekkert sem hann getur ekki gert,“ sagði Trent. „Orkan og það sem hann færir liðinu er alveg gríðarlegt. Hann kvartar aldrei, hann ýtir sér út á ystu nöf, leik eftir leik. Það er ótrúlegur eiginleiki. Hvort sem fólk er sammála eða ekki, þá er hann klárlega í efsta flokki miðjumanna á jörðinni og hefur verið það í mörg ár,“ sagði Trent. Allt sem leikmaður Real Madrid á að vera Álvaro Arbeloa þjálfari Real Madrid hefur fært Valverde aftur á miðjuna, eftir að forveri hans, Xabi Alonso, hafði spilað honum sem hægri bakverði. „Það skiptir ekki máli hvar þú setur [Valverde],“ sagði Arbeloa. „Fyrir mér er hann Juanito 21. aldarinnar, fyrirmynd fyrir Madrid. Hann er allt sem leikmaður Real Madrid á að vera. Hann átti skilið kvöld eins og þetta, hann mun örugglega aldrei gleyma því,“ sagði Arbeloa. Pep Guardiola, þjálfari City, kallaði Valverde „frábæran“ og bætti við að hann hefði verðskuldað verið maður leiksins. Leikur til að muna eftir „Við vildum að Fede væri ákveðnari, að hann sækti á varnarlínu City,“ sagði Arbeloa og útskýrði hlutverk Valverde á hægri vængnum. „Hann lagði gríðarlega mikið á sig, hann hjálpaði Trent í vörninni og hann skoraði þrjú mörk. Þetta er leikur til að muna eftir en það mikilvægasta er það sem hann gefur frá sér, hvað hann þýðir fyrir liðsfélaga sína,“ sagði Arbeloa. „Mann dreymir alltaf um kvöld eins og þetta. Ég naut mín virkilega í dag. Það var langt síðan ég naut leiks eins og þessa,“ sagði Valverde við Movistar. Úrslitin gegn City voru hápunkturinn hingað til á tveggja mánaða starfstíma Arbeloa á Bernabéu. „Þetta var leikurinn þar sem við fylgdum best leikáætluninni sem við höfðum,“ sagði Arbeloa. „Við vorum lið með stórum staf. Þessi búningsklefi er fullur af frábærum leikmönnum en við þurfum líka að vera frábært lið til að sigra City. Við þurfum að hafa sameiginlegt hugarfar, að vera með á hreinu hvað við viljum gera án boltans,“ sagði Arbeloa. View this post on Instagram A post shared by 433 (@433)
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira