Ótvíræður ávinningur af innleiðingu farsældarlaganna Óskar Dýrmundur Ólafsson skrifar 12. mars 2026 15:03 Í tímamótalögum frá árinu 2022 um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er meginmarkmiðið að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Sérstaða laganna markast meðal annars af því að þau stuðla að heildstæðri samvinnu þvert á ráðuneyti, fagsvið og skýra enn betur upp fyrir hverja þau eru; börnin, sem eru ávallt í forgrunni þjónustunnar. Hjá Reykjavíkurborg hefur þessi nálgun birst í fyrirkomulagi sem heitir Betri borg fyrir börn og kallar á samstarf fagsviða og fagráða. Í verki og útfærslu gegna miðstöðvar borgarinnar lykilhlutverki í samþættingu þjónustunnar í nánu samstarfi við leik- og grunnskóla og þá aðila sem sinna frístundastarfi en þverfaglegt samstarf er einn megintilgangur miðstöðvanna sem er að finna í fjórum borgarhlutum: Suður-, Norður-, Austur- og Vesturmiðstöðvar. Aukið samstarf innan borgar og utan Árangur hefur náðst af innleiðingu farsældarlaganna hjá Reykjavíkurborg. Sem dæmi þá hefur breyting orðið á samstarfi stjórnenda leik- og grunnskóla, frístundaþjónustu og velferðarþjónustu sem deila miðstöðvunum sem sameiginlegum vinnustöðum. Tengsl menntunar, velferðar og frístundastarfs hafa styrkst og árangur hefur náðst við að styðja börn til þroska og aukinnar virkni. Gott samstarf er með stjórnendum, starfsfólki, foreldrum og börnum í hverjum borgarhluta fyrir sig og lögð áhersla á að bregðast hratt og vel við með lausnir við áskorunum með snemmtæka nálgun að leiðarljósi. Mikilvægt hlutverk tengiliða farsældar Um geta verið að ræða lausnir í skólaumhverfi barns, til dæmis með samvinnu við frístundaheimili og samvinnu við foreldra um það hvernig er betur hægt að hlúa að námi og uppeldi barns. Þarna gegna tengiliðir farsældar í umhverfi barna í leik- og grunnskólum mikilvægu hlutverki en þeirra hlutverk er að leitast við að leysa úr málum svo að ekki þurfi viðameiri úrræði. Eitt markmið innleiðingar farsældarlaganna er að styðja við lausn áskorana með því að sinna forvörnum. Virk þátttaka í íþrótta- og frístundastarfi er liður í þessu og hefur Reykjavíkurborg unnið markvisst að því að ná til jaðarsettra barna til þess að virkja styrkleika þeirra í nánu samstarfi við hlutaðeigandi aðila eins og íþróttafélög og menningarstarf. Þegar þörf er fyrir aukna samþættingu og þjónustu taka málstjórar miðstöðvanna við og tengja lausnir við þá þjónustu sem þörf er á með samþættri nálgun. Hugað er að staðbundnum veruleika fólks út frá samfélagi þeirra til að skynja heildstætt betur þarfir hvers og eins. Samvinna í nærumhverfi barna stuðlar að betra samfélagi Samfélagsgerðin þróast hratt og verður stöðugt margbreytilegri með tilheyrandi áskorunum. Með því að vinna þverfaglega í nærsamfélaginu þá stuðlum við að samþættari og betri þjónustu. Miðstöðvar borgarinnar halda áfram að þróa þessa nálgun til þess að mæta markmiðum laga um samvinnu og farsæld barna. Greinin er skrifuð í tilefni farsældarviku sem nú stendur yfir í öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Höfundur er framkvæmdastjóri í Suðurmiðstöð Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar