Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Jakob Bjarnar skrifar 19. mars 2026 11:52 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. Svör við fyrirspurn leiða í ljós að biðlaun vegna ráðherra flokksins kosta talsvert. vísir/anton brink Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var að fá svar frá forsætisráðherra um biðlaun ráðherra og hún rak upp stór augu. Á árinu 2025 greiddi ríkið rúmar níu milljónir króna vegna biðlauna fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildar Lóu Þórsdóttur, og á yfirstandandi ári tæpar átta milljónir vegna Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.
Diljá segist öllu vön, hún hefur verið iðin við að grafa upp alls kyns kostnað hjá hinu opinbera en nú blöskrar henni. Hún hyggst senda inn framhaldsfyrirspurn því svörin eru óljós. Diljá trúir ekki þeim upphæðum sem forsætisráðuneytið segir að ráðherraskiptin hafi kostað og ætlar að skila inn framhaldsfyrirspurn. Hún telur að þetta hljóti að vera mistök og ráðuneytið blandað kostnaði við aðstoðarmenn inn í tölurnar.vísir/vilhelm „Þetta er mjög athyglisvert svar en þarfnast nánari skoðunar sýnist mér. Getur verið, en ég spurði sérstaklega um ráðherra, að tæpar átta milljónir hafi farið í vasa Ingu Sæland á þessu ári? Eða eru aðstoðarmenn inni í þessari tölu? Þetta hlýtur eiginlega að vera,“ segir Diljá. Þess ber að geta að í leiðréttingu frá forsætisráðuneytinu eftir að svarið var birt kemur á daginn að ekkert af þessum biðlaunum runnu til Ingu. Fyrir mistök var talað um fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra meðan um er að ræða mennta- og barnamálaráðherra. Rausnarleg biðlaun Fyrirspurn Diljár var svohljóðandi: „Hverjar hafa verið greiðslur úr ríkissjóði vegna biðlauna til fráfarandi ráðherra vegna ráðherraskipta í núverandi ríkisstjórn? Hvaða greiðslur, ef einhverjar, er áætlað að eigi eftir að inna af hendi vegna nýlegra ráðherraskipta? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneytum.“ Og svar barst:„Á árinu 2025 voru greiddar 9.010.402 kr. vegna biðlauna fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra. Um er að ræða biðlaun og launatengd gjöld. Ráðherraskipti. Guðmundur Ingi Kristinsson og Inga Sæland skiptast á lyklum í menntamálaráðuneytinu.vísir/vilhelm Á yfirstandandi ári hafa verið greiddar 7.712.715 kr. vegna biðlauna mennta- og barnamálaráðherra. Greiðslur sem áætlað er að eigi eftir að inna af hendi vegna fyrrnefndra biðlauna nema 1.063.704 kr. Um er að ræða biðlaun og launatengd gjöld.“ Verulegur kostnaður fylgt mannabreytingum hjá Flokki fólksins Diljá segir kostnað sem þennan safnast saman en hún vildi leiða það fram að hringl með ráðherra og aðstoðarmenn, fólk á háum launum hjá hinu opinbera, kosti skattgreiðendur verulega fjármuni. Ragnar Þór Ingólfsson tók við sem félags- og húsnæðismálaráðherra en áður sat Ásthildur Lóa Þórsdóttir þar.vísir/vilhelm „Og það hafa veruleg útgjöld fylgt mannabreytingum hjá Flokki fólksins. Þetta er náttúrlega djöfulsins bruðl en ég ætla að senda framhaldsfyrirspurn. Þetta eru svo háar upphæðir, það er ekki útilokað að þarna sé einhver misskilningur.“ Diljá Mist segist hafa lagt fyrirspurnina inn 5. febrúar og svar hafi borist núna, 19. mars. „Það telst skjót afgreiðsla. Það er verið að veita fresti endalaust en hinn opinberi frestur eru fjórar vikur.“ Uppfært klukkan 12:25 Í samtali við forsætisráðuneytið kemur fram að mistök hafi upphaflega verið gerð í svari til Diljár. Þar stendur óvart að um sé að ræða félags- og húsnæðismálaráðherra meðan um er að ræða mennta- og barnamálaráðherra. Þetta skolaðist til og hefur nú verið leiðrétt í fréttinni einnig. Þetta er vegna Ásthildar Lóu Þórdóttur annars vegar og hins vegar Guðmundar Inga Kristinssonar. Þetta eru þriggja mánaða biðlaun og launatengd gjöld.
Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Rekstur hins opinbera Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Fleiri fréttir Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Sjá meira