Þyrnirós Stefán Vagn Stefánsson skrifar 19. mars 2026 14:16 Eins og alþjóð veit, hefur Seðlabanki Íslands hækkað stýrivexti um 0,25 prósentustig, í 7,50 prósent, sbr. ákvörðun bankans frá 18. mars sl. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu ganga enn lengra og hækka vexti um 0,5%! Það segir sína sögu. Verðbólgan er þrálát og verðbólguvæntingar hafa hækkað. Staðan er einfaldlega alvarleg, sérstaklega fyrir heimilin og fyrirtækin sem hafa beðið eftir tímabæru vaxtalækkunarferli. Sú von er tálsýn í dag. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, hefur líkt efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar við söguna um Þyrnirós: ríkisstjórnin hafi sofið á verðbólguvaktinni á meðan vandinn byggðist upp. Sú samlíking á vel við. Ólíkt sögunni um Þyrnirós, þá eru þyrnar verðbólgunnar ekkert gamanmál. Þeir fela í sér hærri vexti, vaxandi greiðslubyrði og almenna óvissu fyrir fólk og fyrirtæki. Þyrnirós svaf í 100 ár. Og miðað við gang mála virðumst við sem þjóð þurfa hundrað ár til að ná tökum á verðbólgu. En ef verðbólga, vextir og óstöðugleiki verða viðvarandi blasir við sú hætta að fleiri ungir Íslendingar leiti tækifæranna annars staðar. Hlustum á Seðlabankann Ríkisstjórnin stefnir á jafnvægi í ríkisútgjöldum árið 2027. Seðlabankastjóri hefur þó bent á að afgangur eða halli ríkissjóðs sé aðeins einn mælikvarði á stöðu ríkisfjármála. Það skipti líka máli hvernig ríkið er fjármagnað og hvort umfang þess sé að aukast hverju sinni. Ábyrg ríkisfjármál snúast þannig ekki aðeins um jöfnuð tekna og gjalda, heldur líka um umfang, tímasetningu aðgerða, áherslur og þau skilaboð sem stjórnvöld senda inn í hagkerfið. Orð Seðlabankastjóra um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu (eða þróun verðlags) eru í þessu ljósi allra athygli verð: „Þetta hjálpar ekki til," sagði hann þegar vaxtaákvörðun bankans var kynnt. Þetta eru í raun þung skilaboð þótt þau hljómi léttvæg. Þau snúast á engan hátt um andstöðu við að bæta stöðu bótaþega, heldur um tímasetningu aðgerða ríkisins hverju sinni. Ef einhvern tímann var tilefni til sýna aga í ríkisfjármálum og leggja til ábyrgar aðgerðir, þá er það nú. Innlend ábyrgð Átök í Miðausturlöndum og hækkandi olíuverð hafa aukið verðbólguþrýsting á heimsvísu, og þar með hér á landi. Við höfum engin áhrif á ytri aðstæður. En við ráðum því hvernig við rekum ríkissjóð og hvort við vinnum saman að lausnum. Við ráðum því hvort við aukum útgjöld á viðkvæmum tíma eða hvort við beitum festu til að draga úr verðbólguþrýstingi og skapa forsendur fyrir vaxtalækkunum. Heimilin borga reikninginn Háir stýrivextir þýða þyngri greiðslubyrði og minna svigrúm fyrir fjölskyldur. Há verðbólga étur upp kaupmátt og hækkar höfuðstól verðtryggðra skulda. Milljónir króna bætast við höfuðstól hefðbundinna verðtryggra lána á hverju ári. Þeir sem minni fjárráð hafa verða verst úti. Höfum það hugfast. Há verðbólga gerir allar áætlanir enn fremur hálf vonlausar, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hver bjóst við tugþúsunda króna hækkun á afborgunum húsnæðislána í vor- og sumargjöf árið 2026, jafnvel út allt árið. Við sem ætluðum að vera komin í sólríkt vaxtaskjól. Verðbólgusía Við þessar aðstæður þarf nánast hver meiri háttar ákvörðun ríkisins að komast í gegnum eins konar verðbólgusíu. Hún þarf að standast raunverulegt stöðugleikapróf. Dregur hún úr verðbólguþrýstingi eða eykur hann? Eykur hún trú á hagstjórninni eða grefur undan henni? Færir hún okkur nær vaxtalækkunum eða ýtir þeim lengra frá? Þetta eru spurningarnar sem skipta máli núna. Framsókn er sem fyrr reiðubúin til samstarfs um slíkt mat og forgangsröðun og vinna náið með öllum hagaðilum að því að verja forsendur kjarasamninga og stöðugleika. Vekjaraklukkan hefur hringt. Þyrnirós þarf að vakna. Við skulum vekja hana af værum blundi. Saman. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokkurinn Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar