Sonur Maradona: „Ef pabbi var Guð er McTominay Jesús“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. mars 2026 10:00 Það er ekki amalegt að vera nefndur í sömu andrá og sjálfur Diego Maradona. vísir/getty Scott McTominay er í miklum metum hjá Napoli og sonur besta leikmanns í sögu félagsins, Diegos Maradona, hrósaði Skotanum í hástert eftir síðasta leik.
McTominay hefur slegið í gegn hjá Napoli eftir að hann kom frá Manchester United fyrir síðasta tímabil. Hann var í lykilhlutverki þegar Napoli varð ítalskur meistari í fyrra og var valinn besti leikmaður ítölsku úrvalsdeildarinnar. McTominay hefur haldið uppteknum hætti í vetur og á föstudaginn skoraði hann sigurmark Napoli gegn Cagliari. Eftir leikinn mætti Diego Armando Maradona yngri, sonur Napoli-goðsins sjálfs, í útvarpsviðtal þar sem hann jós McTominay lofi. „Ef pabbi var Guð er McTominay Jesús,“ sagði Maradona yngri án þess að blikna. Napoli hefur unnið fjóra leiki í röð og er í 3. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Liðið getur skotist upp í 2. sætið með sigri á AC Milan í fyrsta leiknum eftir landsleikjahléið. McTominay hefur skorað ellefu mörk í 36 leikjum með Napoli í öllum keppnum í vetur. Á síðasta tímabili skoraði hann þrettán mörk í 36 leikjum, þar af tólf í ítölsku úrvalsdeildinni. McTominay og félagar hans í skoska landsliðinu mæta Japan og Fílabeinsströndinni í tveimur vináttulandsleikjum í lok þessa mánaðar.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira