Sjálfstæðisbarátta nútímans Logi Einarsson skrifar 25. mars 2026 07:02 Gervigreindarbyltingin er komin til að vera, þótt enginn viti nákvæmlega hvaða áhrif hún mun hafa á efnahag, störf og öryggismál af ýmsum toga. Það er því ábyrgðarhluti að gegna embætti ráðherra gervigreindar á þessum umbrotatímum. Ég er staðráðinn í að standa undir þeirri ábyrgð með því að leiða verkefnið fyrir Íslands hönd, vinna með þeim sem fremst standa og stuðla að því að tækifærin verði gripin en áskorunum jafnframt mætt af ábyrgð. Þess vegna var það eitt af mínum fyrstu verkum að ráða til starfa sérfræðinga í málefnum gervigreindar og ljúka við gerð aðgerðaáætlunar í 20 liðum sem snertir flest svið samfélagsins. Um þessar mundir vinnum við að endurskoðun áætlunarinnar, enda gerast hlutirnir hratt bæði í ráðuneytinu og heiminum. Rauði þráðurinn Með aðgerðaáætlun um gervigreind settum við okkur það markmið að styrkja stöðu Íslands á sviði gervigreindar, styðja við samkeppnishæfni atvinnulífsins og bæta opinbera þjónustu, en líka að vera hluti af öflugu og alþjóðlegu samstarfi með okkar nánustu samstarfsríkjum. Rauði þráðurinn í aðgerðaáætluninni er að þjóðin njóti góðs af hagnýtingu tækninnar. Áhersla er lögð á að verja dýrmæt sameiginleg gildi okkar og auka um leið verðmætasköpun og lífsgæði almennings. Við viljum skapa skýra umgjörð, efla nýsköpun og nýta tæknina til að bæta þjónustu, auka framleiðni og styðja við framsækið skólakerfi og heilbrigðiskerfi. Við ætlum líka að starfa náið með leiðandi fyrirtækjum í atvinnulífinu og efla þekkingu og færni fólks á vinnumarkaði. Um leið munum við gæta að skuggahliðum tækninnar, hvernig hún getur nýst til að grafa undan réttindum fólks og lýðræðislegri umræðu, og verja stöðu þeirra sem starfa í menningu og listum og geta verið rænd hugverkum sínum. Gervigreindarfullveldi Íslands? Á undanförnum mánuðum hef ég sótt alþjóðlega fundi og ráðstefnur um gervigreind líkt og leiðtogafund á Indlandi í febrúar. Þar er áhugavert að heyra hvernig aðrar þjóðir eru að fóta sig í þessum málum – og samtímis að átta sig á því hvað Ísland er komið langt í samanburði við mörg önnur lönd. Ekki aðeins erum við að vinna eftir aðgerðaáætlun um gervigreind, sem ýmis önnur ríki eru að leggja lokahönd á, heldur erum við að vinna því að treysta stoðir gervigreindarfullveldis Íslands. Nú er von að einhver spyrji hvað það sé. Í stuttu máli vísar gervigreindarfullveldi til getu þjóðar til að þróa, hýsa og hafa áhrif á gervigreindartækni. Í dag mætti segja að Ísland skorti enn marga af þessum þáttum enda treystum við nær alfarið á tækni sem er hýst erlendis – staðreynd sem vekur meðal annars upp spurningar um persónuvernd,gagnaöryggi og getu okkar til þess að verjast utanaðkomandi áhrifum á lýðræðislega umræðu. Því vinnum við nú markvisst að því að koma upp þekkingu og getu á þessu sviði og þannig auka viðnámsþrótt og þjóðaröryggi. Íslenskt mállíkan á Íslandi Það verður að búa svo um hnútana að viðkvæm gögn og mikilvægar upplýsingar rati ekki inn í gagnagrunna erlendra stórfyrirtækja í meira mæli en orðið er. Heilsufars- og fjárhagsupplýsingar, og allt það sem varðar öryggi borgara og samfélags, verður að tryggja og verja hér á landi. Þess vegna höfum við hug á að koma á fót íslensku mállíkani þar sem unnið verður með gögn sem ekki mega verða söluvara á markaði. Markviss undirbúningur að gerð mállíkansins er hafinn og við erum í samtölum við leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki um þróun þess, sem verður kynnt betur í náinni framtíð. Í raun þurfum við að tryggja þrennt: Öfluga innviði: Tæknilega innviði til að hýsa og þróa gervigreindarlíkön hér á landi. Sérfræðikunnáttu: Sérhæft starfsfólk sem getur bæði haldið tækninni við og þróað nýjar lausnir á sviði gervigreindar. Íslenskt mállíkan á heimsmælikvarða: Aðgang að stóru mállíkani sem veitir íslenskri tungu fyrsta flokks stuðning um leið og það virðir gildi okkar, lög og menningu. Þetta eru metnaðarfull en nauðsynleg markmið. Að styrkja stoðir gervigreindarfullveldiser sérstaklega mikilvægt fyrir lítið málsvæði eins og okkar, þar sem við viljum ekki vera algjörlega háð erlendum tæknirisum með okkar eigin gögn og tungumál. Skýr formerki Við Íslendingar höfum alla burði til að vera framarlega í flokki á sviði gervigreindar, en við verðum það tæplega án alþjóðlegs samstarfs. Þess vegna eru stjórnvöld viljug til að ræða og semja við fyrirtækin sem fremst standa í gervigreind - en undir skýrum formerkjum. Þeirra á meðal eru kröfur okkar um að fjárfestingin og tæknin nýtist íslenskum fyrirtækjum og almenningi. Þannig viljum við vinna að því að komu stórra fyrirtækja hingað með gervigreindargagnaver fylgi raunverulega virðisaukandi starfsemi hér á landi. Íslenskir aðilar fái aðgang að reiknigetu og unnið verði með fyrirtækjunum að uppbyggingu þekkingar og hagnýtingu hennar. Þótt Ísland sé ríkt af reiknigetu er afar takmarkaður hluti hennar tekinn frá fyrir íslenskt hugvit. Það er því hlutverk stjórnvalda að gæta þess að fjárfestingar og innviðir landsins komi okkur sjálfum til góða svo við sitjum ekki eftir þrátt fyrir samstarf við fremstu fyrirtæki heims. Þetta er grundvallaratriði að mínu viti og í takt við atvinnustefnu stjórnvalda til næstu 10 ára sem kynnt verður á næstunni. Norðurlöndin, Google og Microsoft Ég vil stórauka alþjóðlegt samstarf á sviði máltækni til að tryggja að tækifæri séu sótt og regluverk og umgjörð sé með því besta sem gerist. Á grundvelli íslensks frumkvæðis í máltækni höfum við þróað samstarf á ýmsum sviðum og fórum nú nýlega fyrir norrænu samstarfi um gervigreind með stofnun New Nordics AI sem er sameiginlegt framtak AI Sweden, AI Finland, Digital Dogme (Danmörku), IKT Norge og Almannaróms á Íslandi. Til viðbótar við Norrænu ráðherranefndina hafa Google, Microsoft og Nordic Innovation þegar samþykkt að veita verkefninu fjárhagslegan stuðning. Markmiðið er að styrkja samstarf milli stjórnvalda, háskólasamfélags og atvinnulífs á Norðurlöndum, hraða upptöku gervigreindar og uppbyggingu innviða sem og efla ábyrga nýsköpun í tæknimálum. Samstarfið innan New Nordics AI er leitt af Almannarómi fyrir Íslands hönd og fer Ísland með stjórnarformennsku í upphafi. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin eru einbeitt í að taka forystu á þessu sviði og við munum ekki láta okkar eftir liggja. Almannarómur, Árnastofnun og háskólarnir eru einnig aðilar að Glóð, sem nýverið hlaut stóran Evrópustyrk til að greiða aðgengi að þjálfun, sérfræðiþekkingu og reikniafli fyrir verkefni á sviði máltækni og gervigreindar sem eru ekki komin á samkeppnisstig. Með öruggum skrefum og markvissu frumkvæði grípum við tækifærin sem gervigreindin færir okkur og mætum áskorunum af ábyrgð og öryggi. Sem ráðherra gervigreindar í ráðuneyti sem fer að auki með nýsköpun, íslensku, skapandi greinar og háskóla kalla ég eftir samstarfi við öll þau sem vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja sjálfstæði okkar, öryggi og tungumál í síbreytilegum heimi. Höfundur er menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Logi Einarsson Gervigreind Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Íslensk tunga Skóla- og menntamál Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun