Guðmundur orðaður við Flokk fólksins í Reykjavík Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. mars 2026 20:14 Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu, félags fanga, og Landsmálafélagsins Rósarinnar. Vísir/Vilhelm Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar og Afstöðu, er orðaður við sæti á lista Flokks fólksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík. Hann vildi ekki tjá sig þegar fréttastofa bar þetta undir hann.
Þetta herma heimildir fréttastofu en sömuleiðis heimildir Gímaldsins en þar er fullyrt að Guðmundur Ingi komi til með að verma eitt efstu sætanna á lista Flokks fólksins. Í því mengi eru einnig nefnd á nafn þau Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi flokksins og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra, Ásthildar Lóu Þórsdóttur. Hún er sömuleiðis eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Eins og komið hefur fram sló í brýnu milli Guðmundar Inga og kjörstjórnar Samfylkingarinnar. Hann hafnaði í sjöunda sæti í prófkjörinu en ákvörðun var tekin um að hann fengi það ekki. Í samtali við fréttastofu sagði Björk Vilhelmsdóttir formaður uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar að ekki hefði tekist að mynda traust milli flokksins og Guðmundar Inga. „Það er einhugur í uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar sem er að bjóða ekki fólki sem hefur í hótunum eða stendur í viðtölum við aðra flokka,“ sagði hún í febrúar. Landsmálafélagið Rósin sagði sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík í kjölfarið. Skömmu seinna kom það fram að Guðmundur Ingi hafði átt í samtölum við fulltrúa Vinstrisins, þá Vors til vinstri, um mögulegt samstarf. „Ef niðurstaða næst í þeim samtölum sem nú eiga sér stað mun Rósin taka afstöðu og kynna hana með formlegum hætti þegar þar að kemur. Markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til sterkrar og trúverðugrar vinstri hreyfingar sem stendur með fólki í verki.“ Svo virðist sem að þær viðræður hafi ekki borið árangur.
Flokkur fólksins Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira