Milljónir No Kings-mótmælenda: „Það verður að stöðva Trump“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. mars 2026 12:27 Robert De Niro tók þátt í mótmælunum í New York-borg. Getty Skipulögð mótmæli gegn stefnu Donalds Trump Bandaríkjaforseta fóru fram í flestum stórborgum landsins í gær. Yfir þrjú þúsund mótmælaviðburðir voru haldnir og segja skipuleggjendur að yfir átta milljónir manna hafi tekið þátt.
Um er að ræða þriðju skipulögðu mótmælin undir yfirskriftinni No Kings eða Engir kóngar þar sem Trump er sakaður um valdníðslu og að líta á sig sem kóng en ekki forseta í lýðræðisríki. 350 konur í Wisconsin-fylki komu sér saman og leiddu mótmælin.AP Fólk gekk um götur stórborga með skilaboð á skiltum meðal annars gegn árásinni á Íran, aðgerðum í innflytjendamálum og hærri framfærslukostnaði. Mótmælin fóru að mestu friðsamlega en þó kom til óláta bæði í Los Angeles og Dallas þar sem nokkrir voru handteknir. Að minnsta kosti hundrað þúsund manns mótmæltu í New York-borg.AP Mótmælandi hellti á sig gerviblóði er hún mótmælti í Washington DC.AP Robert De Niro var meðal mótmælenda í New York-borg og tók þar til máls. „Það verður að stöðva Trump. Það er það sem Engir kóngar snýst um því hann getur ekki gert þessa hræðilegu hluti sem hann er að gera án stuðnings frá þinginu og fíflunum í ríkisstjórninni hans,“ sagði De Niro. Mótmælt var í stærstu borgum Bandaríkjanna, þar á meðal Washington DC, Los Angeles, Boston, Nashville og Houston. Þá voru haldin samstöðumótmæli í París, Lundúnum og Lissabon. Þessi mótmælandi var handtekinn í Los Angeles-borg.AP Söngvarinn Bruce Springsteen kom fram í Minnesota-fylki þar sem hann minntist Renee Good og Alex Pretti sem voru bæði drepin af fulltrúum ICE, Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna. Hann söng líka lagið Streets of Minneapolis sem hann gaf nýverið út. Íbúar í Minnesota komu saman og mótmæltu.AP Talið er að milljónir hafi mótmælt í gær.AP
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Yfir þrjú þúsund mótmælaviðburðir gegn forsetanum Donald Trump hafa verið skipulagðir víða í Bandaríkjunum í dag og viðbúið er að milljónir sæki þá. 28. mars 2026 14:55 Gríðarlegur fjöldi á No Kings mótmælunum Búist er við að milljónir manna flykkist út á götur bandarískra borgra til að taka þátt í mótmælum gegn ríkisstjórn Donald Trumps. Samtökin No Kings eru að baki mótmælunum en þau héldu einnig gríðarstór mómtæli í júní. 18. október 2025 17:25 Trump birti gervigreindarmyndband: Með krúnu á höfði að henda hægðum á mótmælendur Í kjölfar gríðarstórra mótmæla í Bandaríkjunum birti Bandaríkjaforseti gervigreindarmyndband þar sem hann sést með kórónu á höfði að fljúga herþotu sem skýtur hægðum á mótmælendur. Ekki er þetta fyrsta gervigreindarmyndbandið af þessu tagi sem forsetinn birtir. 19. október 2025 15:53 Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Starmer segir af sér Erlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira
Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Yfir þrjú þúsund mótmælaviðburðir gegn forsetanum Donald Trump hafa verið skipulagðir víða í Bandaríkjunum í dag og viðbúið er að milljónir sæki þá. 28. mars 2026 14:55
Gríðarlegur fjöldi á No Kings mótmælunum Búist er við að milljónir manna flykkist út á götur bandarískra borgra til að taka þátt í mótmælum gegn ríkisstjórn Donald Trumps. Samtökin No Kings eru að baki mótmælunum en þau héldu einnig gríðarstór mómtæli í júní. 18. október 2025 17:25
Trump birti gervigreindarmyndband: Með krúnu á höfði að henda hægðum á mótmælendur Í kjölfar gríðarstórra mótmæla í Bandaríkjunum birti Bandaríkjaforseti gervigreindarmyndband þar sem hann sést með kórónu á höfði að fljúga herþotu sem skýtur hægðum á mótmælendur. Ekki er þetta fyrsta gervigreindarmyndbandið af þessu tagi sem forsetinn birtir. 19. október 2025 15:53