„Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Samúel Karl Ólason skrifar 30. mars 2026 10:37 Donald Trump yngri á Grænlandi í fyrra. EPA/EMIL STACH Þrír Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, voru í fyrra sagðir undir eftirliti dönsku leyniþjónustunnar. Voru þeir sakaðir um að eiga í eins konar leynilegri áróðursherferð í Grænlandi og leggja grunninn að mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni, eins og Trump hefur ítrekað talað um.
Danska ríkisútvarpið sagði mennina ferðast reglulega til Grænlands og reyna að auka stuðning þar í landi við yfirtöku Bandaríkjanna. Mennirnir héldu einnig út lista yfir Grænlendinga sem þóttu vinvættir Bandaríkjunum. DR nafngreindi mennina aldrei en þeir segjast alls ekki hafa reynt að fara huldu höfði. Í samtali við New York Times viðurkenna tveir þeirra að frétt DR, sem leiddi til þess að ríkisstjórn Danmerkur kallaði sendiherra Bandaríkjanna þar í landi á teppið, fjallaði líklega um þá. Einn mannanna heitir Drew Horn en hann er fyrrverandi sérsveitarmaður sem hefur opinberað ætlanir um að byggja stærðarinnar gagnaver á Grænlandi og keyra það á enn óbyggðri vatnaflsvirkjun, þó ráðamenn þar hafi sagt að hann hafi ekki verið í neinum samskiptum við þá. Annar heitir Thomas Dans en sá hefur ráðlagt Trump á sviði norðurslóða og hefur skipulagt ferðir fyrir Trump-liða til Grænlands. Meðal annars skipulagði hann umdeilda ferð Donalds Trump yngri til Grænlands í fyrra. Sjá einnig: Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Þriðji maðurinn sem hefur verið að tala máli Trumps á Grænlandi er Chris Cox. Hann er stofnandi samtaka sem kallast „Mótorhjólamenn fyrir Trump“. Hann er einnig meðlimur í opinberu ráði Bandaríkjanna um öryggi heimalandsins en meðlimir þess ráðleggja Hvíta húsinu í öryggismálum. Fjallað var um hann í 60 mínútum í fyrra en þá sagðist hann vera á ferðinni um Grænland með því markmiði að eignast vini. Cox bregður fyrir í umfjölluninni hér að neðan, eftir rúmar sex mínútur. Þar sést hann segja grænlenskum manni að hann sé í leit að vinum. Hafa fjárfest á Grænlandi Í grein Times segir að mennirnir þrír hafi alls ekki farið leynt með aðgerðir sínar á Grænlandi. Þeir hafi allir talað opinberlega um það að bæta hagsmuni Bandaríkjanna þar, bæði í viðtölum við fjölmiðla og á samfélagsmiðlum, bæði með þeirra eigin færslum og í færslum annarra. Mennirnir eru einnig að reyna að bæta eigin hagsmuni en það á einnig við þó nokkra menn úr innsta hring Trumps. Ronald Lauder, auðjöfurinn sem talinn er hafa kveikt á áhuga Trumps á Grænlandi, hefur fjárfest í fyrirtækjum þar og það hefur Howar Lutnick, viðskiptaráðherra, einnig gert. Talsmenn Trumps í Hvíta húsinu vildu ekkert segja um það hvernig þremenningarnir og aðgerðir þeirra á Grænlandi tengjast ríkisstjórninni. Þess í stað var sendyfirlýsingu um að ríkisstjórn Trumps væri að vinna með Grænlandi ogNATO að samkomulagi sem myndi reynast „frábært fyrir Bandaríkin“. Trump lét af opinberum hótunum sínum í garð Grænlendinga, Dana og annarra ríkja Evrópu sem standa með þeim, eftir að hann sagðist hafa gert einhverskonar samkomulag við Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem átti að gefa Bandaríkjamönnum allt sem Trump sóttist eftir varðandi Grænland. Enn hefur ekki komið í ljós hvað þetta samkomulag á að hafa falið í sér. Ráðamenn í Danmörku telja þó að Trump ágirnist enn Grænland. Danskir miðlar sögðu frá því fyrr í mánuðinum að danskir hermenn hefðu verið sendir með sprengiefni og blóðbirgðir til Grænlands í janúar. Þá áttu þeir að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands, ef Trump reyndi að taka eyjuna með hervaldi. Segjast ekki fela neitt Í samtali við NYT segist Drew Horn hafa haft gaman af því að hvernig ríkisútvarp Danmerkur hefði teiknað upp aðgerðir hans á Grænlandi sem einhverskonar skuggaherferð. Hann sagðist alltaf hafa verið opinskár varðandi hvað hann væri að gera á Grænlandi. Horn fór fyrst til Grænlands fyrir sjö árum, þegar hann var ráðgjafi hjá orkuráðuneyti Bandaríkjanna. Það var á fyrsta kjörtímabili Trumps og var Horn í leit að fjárfestingartækifærum í orku og námuvinnslu. https://t.co/l9BtbKR4Pp#Greenland #USA #minerals— Drew Horn (@DrewHornUSA) August 8, 2025 Þegar fyrsta kjörtímabili Trumps lauk fór Horn í einkageirann og stofnaði fyrirtækið GreenMet. Það fyrirtæki snýr að nýtingu svokallaðra sjaldgæfra málma, sem talið er að finna megi töluvert af á Grænlandi. Sjá einnig: Af hverju langar Trump í Grænland? Thomas Dans var nýverið skipaður formaður ráðs Bandaríkjanna um rannsóknir á norðurslóðum en það er ráð sem ráðleggur forsetanum og þinginu um málefni norðurslóða. Dans var í sama embætti á fyrra kjörtímabili Trumps. Hann stofnaði nýverið samtök sem ætlað er að bæta samskipti Grænlands og Bandaríkjanna. Samtök þessi fengu grænlenskan múrara til að ferðast til Bandaríkjanna og aðstoða við kosningabaráttu Trumps og varð sá múrari einn mesti stuðningsmaður Trumps á Grænlandi, eða í það minnsta sá sýnilegasti. Það var einnig Dans sem stakk upp á því að JD Vance, varaforseti Trumps, ferðaðist til Grænlands og fylgdist með vinsælli hundasleðakeppni þar. Að endingu heimsótti Vance þó eingöngu bandaríska herstöð á Grænlandi. Var það eftir að ljóst varð að Grænlendingar ætluðu að mótmæla Vance. Dans er nú staddur í Danmörku, ef marka má síðu hans á X. Good morning from Aarhus pic.twitter.com/6SILztPvTS— Thomas Emanuel Dans 🇺🇸 (@TomDansCFA) March 30, 2026
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Donald Trump Danmörk Tengdar fréttir Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti Grænlands hafa sagt sig úr flokki sínum Siumut í mótmælaskyni eftir að formaður flokksins ákvað að ganga úr ríkisstjórnarsamstarfinu. 17. mars 2026 18:33 Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham er sagður hafa hellt sér yfir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, á öryggisráðstefnu í Þýskalandi á laugardag. 17. febrúar 2026 22:16 Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. 22. febrúar 2026 11:24 Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. 18. febrúar 2026 06:48 Telur Trump enn girnast Grænland Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump. 15. febrúar 2026 07:46 Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. 14. febrúar 2026 10:40 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Sjá meira
Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti Grænlands hafa sagt sig úr flokki sínum Siumut í mótmælaskyni eftir að formaður flokksins ákvað að ganga úr ríkisstjórnarsamstarfinu. 17. mars 2026 18:33
Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham er sagður hafa hellt sér yfir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, á öryggisráðstefnu í Þýskalandi á laugardag. 17. febrúar 2026 22:16
Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. 22. febrúar 2026 11:24
Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. 18. febrúar 2026 06:48
Telur Trump enn girnast Grænland Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump. 15. febrúar 2026 07:46
Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. 14. febrúar 2026 10:40