Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Freyja Þórisdóttir skrifar 30. mars 2026 17:20 Frá og með 1. janúar, 2026, var öllum eigendum ökutækja, óháð orkugjafa, skylt að greiða kílómetragjald. Vísir/Anton Brink Kílómetragjaldið hefur verið áberandi í samfélagsumræðunni undanfarið en í morgun var undirskriftasöfnun fyrir afnámi þess hrint af stað. Fjöldi manns hefur þegar skrifað undir listann.
Undirskriftasöfnun fyrir afnámi kílómetragjalds sem var stofnuð snemma í morgun stendur í tæpum sextán þúsund undirskriftum. Ábyrgðaraðili söfnunarinnar er Maria Csizmás en hún birti nú fyrir skömmu færslu í Facebook-hópnum Kílómetragjaldið þar sem hún lýsir undrun sinni á viðtökunum. „Takk kærlega fyrir stuðninginn, deilingarnar og öll skilaboðin — þetta sýnir svo skýrt að málið skiptir máli og að við erum mörg sem viljum breytingar. Ef þú hefur ekki skrifað undir ennþá, þá máttu endilega gera það og deila áfram, saman getum við látið í okkur heyra,“ segir Maria í færslunni. Vilja sjá gjaldið fellt í heild sinni Í yfirlýsingunni sem fylgir söfnuninni á vef Ísland.is kemur fram að undirrituð krefjist þess að kílómetragjald á ökutæki verði fellt niður í heild sinni. „Núverandi kerfi er ekki aðeins gallað í framkvæmd, heldur einnig óréttlátt í grunnatriðum,“ segir þar en sömuleiðis er sett út á skekkju á milli „raunverulegs aksturs og þess sem kílómetramælir bíls sýnir,“ bæði í yfirlýsingunni og í fjölda færslna í Facebook-hópnum. Þann 14. mars var efnt til mótmæla á Austurvelli gegn kílómetragjaldinu. Hátt í þrjú hundruð manns hökuðu við „going“ á Facebook-viðburðinum en heldur færri létu sjá sig þegar stundin var runnin upp. Eftir því sem lesa má í Facebook-hópnum Mótmælum kílómetragjaldi mættu á bilinu fimmtán til þrjátíu manns á Austurvöll til að mótmæla. Í ljósi mætingarinnar á mótmælin er óhætt að segja að undirskriftasöfnunin hafi farið betur af stað en ætla mátti.
Kílómetragjald Bílar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira