Óseðjandi útvistunarblæti Samfylkingar og Vinstrisins (2/3) Orð Vinstrisins á móti verkum Guðröður Atli Jónsson skrifar 31. mars 2026 15:02 Vinstrisins er kosningasamsteypa Vinstri grænna og Vor til vinstri, stofnuð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Vor til vinstri er hreyfing sem Sanna Magdalena, fyrrverandi pólitískur leiðtogi Sósíalistaflokksins, stofnaði eftir að hún sneri baki við flokknum, þótt hún sé enn skráð á félagaskrá hans. Þrátt fyrir að félagsmenn Sósíalista hafi kosið hana sem leiðtoga með standandi lófaklappi, hafnaði hún þeim vegna ágreinings við nokkra einstaklinga í framkvæmdastjórn. Nú býður hún fram gegn fólkinu sem sýndi henni þennan heiður. Spurningin brennur á mörgum: Á vinstrifólk raunverulega að treysta þessu framboði þegar gögnin sýna að það útvistar opinberri þjónustu af meiri krafti en áður, þrátt fyrir fögur orð um annað? „Útvistun er hugmyndafræðilegt illgresi“ Þannig komst Sanna, oddviti Vinstrisins, að orði í pistli á Vísi þann 9. febrúar 2026. Þar spurði hún hvort útvistun hefði „sýnt fram á að þar sé vel farið með almannafé" og hvort þetta væri „skynsöm leið fyrir þá sem reiða sig á þjónustuna". Greiningin er hárrétt, en vandamálið er veruleikinn. Undir meirihluta oddvitans og Vinstrisins hefur nákvæmlega það gerst sem hún lýsir sem „illgresi“, án þess að nokkur hafi hreyft legg né lið til að stöðva það. Verkin tala Securitas: Í maí 2025 var samþykktur samningur við Securitas hf. um öryggisgæslu og húsvörslu í stjórnsýsluhúsum borgarinnar. Áður sinnti eigið starfsfólk borgarinnar þessum störfum, en þau voru lögð niður og færð verktaka. iClean: Sama mánuð samþykkti ráðið ræstingasamning við iClean ehf., fyrirtæki sem Efling hafði gagnrýnt harðlega fyrir brot á vinnurétti. Þetta gerðist á meðan stéttarfélagið barðist gegn kjarabrotum í hreingerningariðnaðinum. Vetrarþjónusta: Í september 2025 kláraði nýi meirihlutinn útvistun á vetrarþjónustu gangstétta og hjólastíga. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa; fyrsta snjókoma vetrarins sýndi að hreinsun sem áður tók 36 klukkustundir tók nú fjóra sólarhringa. Eina ljósa dæmið um innvistun undir þessum meirihluta er sorphirðan, þar sem borgin rekur eigin starfsfólk og eigin bílaflota. Þegar öllum tilboðum í nýja sorpbíla var hafnað í janúar 2026 samþykkti ráðið beina samningsgerð til að tryggja áframhaldandi eigin rekstur. Þetta sýnir að þegar pólitískur vilji er til staðar er hægt að velja innvistun. Spurningin er hvers vegna sá vilji birtist ekki þegar kemur að húsvörðum, ræstingum eða vetrarþjónustu. Sorphirðan sýnir líka hversu stöðugur þrýstingurinn er á stjórnmálamenn að útvista jafnvel vel rekinni opinberri þjónustu. Sjálfstæðisflokkurinn lagði ítrekað til einkavæðingu sorphirðunnar, bæði í september 2023 og janúar 2024, þrátt fyrir að borgin sé eina sveitarfélagið á Íslandi sem rekur sorphirðu með eigin starfsfólki og greiðir þeim mannsæmandi laun. Í október 2025 staðfesti rannsókn héraðssaksóknara og Samkeppniseftirlitsins á Terra og Kubbi nákvæmlega þá hættu sem verkalýðshreyfingin hafði varað við: tilboðssvik, markaðsskiptingu og einokunarverðlagningu í sorphirðu hjá sveitarfélögum sem höfðu útvistað þjónustunni. Þetta er veruleikinn sem bíður þeirra sem gefa eftir fyrir þrýstingnum. Oddviti Vinstrisins skrifar að útvistun rífi upp stöðugleika þar sem starfsmaður þekki húsnæði sitt og ábyrgð. Þetta lýsir því miður nákvæmlega þeim veruleika sem hún sjálf skapaði þegar húsverðir borgarinnar voru settir á götuna. Innkauparáðið: 25 fundir, engar spurningar Undir meirihluta Vinstrisins á þessu ári hélt innkaupa- og framkvæmdaráð 25 fundi og samþykkti um 70 útboð. Í mars 2025 fékk ráðið það verkefni frá borgarstjórn að vinna tillögur um keðjuábyrgð, svo borgin bæri ábyrgð á kjörum starfsfólks hjá verktökum sínum. Á næstu 22 fundum gerðist bókstaflega ekki neitt. Orðið „keðjuábyrgð“ birtist aldrei aftur í fundargerðum. Orð á borð við „trúnaðarmaður“, „Efling“ eða „kjaraskilyrði“ koma hvergi fyrir í öllum þessum 70 útboðum. Trúverðugleikinn Ætlar vinstrifólk virkilega að treysta þeim sem tala gegn útvistun í fjölmiðlum en stimpla hana af á hverjum einasta fundi? Oddviti Vinstrisins sneri baki við sínum eigin félögum í Sósíalistaflokknum og útvistaði svo störfum vinnandi fólks af meiri krafti en nokkur hægri meirihluti hefði gert á sama tíma. Þegar orðin og verkin stefna í sitthvora áttina verða kjósendur að velja hvort þeir trúa fögrum loforðum eða köldum tölum. Tölurnar ljúga ekki. Höfundur er flokksmaður í Sósíalistaflokknum. Þetta er önnur grein í þriggja greina seríu um útvistun í Reykjavík. Næst: Leigan sem enginn ræðir. Heimildir Sanna Magdalena, „Viljum við flókið kerfi milliliða eða einfaldari leið að grunnþjónustu?“ Vísir, 9. febrúar 2026. Fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs, fundir 158-182 (reykjavik.is). Fundargerðir borgarráðs, fundur 5784 (reykjavik.is). Útboðsgögn 16146 (öryggisgæsla), 16097 (ræsting), 16169 (vetrarþjónusta). Efling stéttarfélag, gagnrýni á kjarabrot, febrúar-maí 2025. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar