Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Kristján Már Unnarsson skrifar 1. apríl 2026 17:57 Haukur Þór Hauksson, frambjóðandi Miðflokksins, ásamt eiginkonu sinni, Ástu Möller, fyrrverandi alþingismanni Sjálfstæðisflokksins. vísir/Steina Matt Haukur Þór Hauksson, rekstrarhagfræðingur og frístundabóndi í Borgarfirði, mun skipa efsta sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð. Haukur gekk nýlega í Miðflokkinn en áður hefðu margir eflaust skilgreint hann sem innmúraðan sjálfstæðismann. Hann er auk þess kvæntur fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins.
Héraðsfréttablaðið Skessuhorn greindi fyrst frá því að Haukur Þór myndi leiða lista Miðflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Borgarbyggð. Framboðslistinn verður þó ekki opinberlega kynntur fyrr en eftir páska. Haukur var á yngri árum virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, var meðal annars varaformaður Heimdallar, í stjórn hverfafélags og landsfundarfulltrúi. Hann er eiginmaður Ástu Möller en hún sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árabilinu 1999 til 2009. Haukur Þór Hauksson mun skipa efsta sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð.aðsend Haukur hefur einnig verið í framvarðarsveit í samtökum kaupmanna en hann var formaður Félags íslenskra stórkaupmanna og Samtaka verslunarinnar. Hann var kaupmaður í Borgarljósum þar til ljósafyrirtækið var selt árið 2002 en rekur núna fyrirtækjaráðgjöfina Investis. Fyrir rúmum áratug fluttu þau hjónin heimili sitt úr Reykjavík og byggðu upp jörðina Fornastekk í Stafholtstungum. Þar hafa þau stundað margvíslegan frístundabúskap. Í samtali við fréttastofu Sýnar kveðst Haukur hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum vegna óánægju með samstarf flokksins með Vinstri grænum í síðustu ríkisstjórn. Ríkisútgjöld hafi þá snaraukist og opinberum starfsmönnum fjölgað umtalsvert. Auk þess hafi sér mislíkað margt í utanríkisstefnu ráðherra flokksins. Hann hafi þó ekki gengið í Miðflokkinn fyrr en nýlega eftir að leitað var til hans um að leiða framboð flokksins í Borgarbyggð. Hann hafi slegið til enda hafi sér hugnast vel málflutningur flokksins. Haukur er þegar farinn að láta til sín taka í opinberri umræðu um málefni Borgarbyggðar. Hann segir að taka þurfi til í fjármálum sveitarfélagsins eftir skuggalega skuldaukningu. Þá kveðst hann ætla að beita sér af alefli gegn áformum um vindmyllur á hálsum Borgarfjarðar og lagningu háspennulínu í gegnum sveitirnar.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarbyggð Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira