Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Bjartur Hrafn Jóhannsson skrifar 2. apríl 2026 07:32 Það er óhætt að segja að enginn kýs að vera heimilislaus, húsaskjól er jú ein af grunnþörfum fólks. Alls konar aðstæður og áföll geta hins vegar komið upp í lífi hvers og eins sem geta gert það að verkum að viðkomandi missir húsnæði. Setjum okkur í þeirra spor og ímyndum okkur að við séum heimilislausir einstaklingar í neyðarskýlum borgarinnar. Við vöknum snemma alla morgna á neyðarskýli og höfum stuttan tíma til að fara þaðan út, en það lokar klukkan tíu á morgnana. Dagurinn fram undan er óviss. Við fáum okkur kaffibolla á kaffistofu Samhjálpar og reynum að halda okkur gangandi, förum í göngutúr ef veður leyfir. Margir glíma við fíknivanda sem gerir stöðuna enn erfiðari. Klukkan fimm síðdegis, þegar neyðarskýlin opna, fáum við að koma aftur. Þar eru einungis tveir starfsmenn á vakt sem sjá um allt húsið. Þegar það er mest að gera eru hátt í þrjátíu manns að gista í einu. En ímyndum okkur að við búum ekki í Reykjavík. Erum við þá síður heimilislaus? Ríkið þarf að stíga fram Sum sveitarfélög eru með samning við Reykjavíkurborg þar sem þeirra skjólstæðingar fá að nýta neyðarskýli borgarinnar. Svo eru önnur sveitarfélög sem hafa engan samning við borgina og eru þeirra skjólstæðingar þá í mun verri stöðu en ella ef þeir missa húsnæði. Í dag er Reykjavíkurborg eina sveitarfélagið sem rekur neyðarskýli. Þau eru tvö fyrir heimilislausa karlmenn og svo rekur Rótin, sem er frjáls félagasamtök, Konukot sem er fyrir heimilislausar konur og nýtur það styrkja frá Reykjavíkurborg. Borgin rekur einnig íbúðarúrræði fyrir heimilislausa þar sem notast er við svokallaða „housing first“ hugmyndafræði, þar sem fólk fær húsnæði fyrst og stuðning samhliða. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að þessi nálgun skilar mjög góðum árangri. Það er því fagnaðarefni að félags- og húsnæðismálaráðherra hafi nýlega stigið skref í átt að því að móta heildstæða landsstefnu um heimilisleysi á Íslandi. Slík stefnumótun er mikilvægur grunnur að betri þjónustu heimilislausra um allt land. Þó er ljóst að slík vinna er aðeins fyrsta skrefið. Það mun koma í ljós á næstu misserum hvernig það verður í framkvæmd. Reynslan sýnir að stefnumótun ein og sér nægir ekki nema henni sé fylgt eftir með skýrri verkaskiptingu og raunverulegri framkvæmd. Heimilisleysi er stórt vandamál sem Reykjavík getur ekki leyst ein sín liðs. Á meðan skortur er á samræmdri stefnu mun fólk halda áfram að falla á milli kerfa. Ríkið þarf því að fylgja þessu eftir með auknu fjármagni og áætlun sem nær yfir allt landið, ekki bara Reykjavík. Heimilisleysi er ekki vandamál Reykjavíkur Heimilisleysi er samfélagslegt verkefni sem krefst raunverulegra aðgerða. Það þarf að tryggja að allir sem lenda í húsnæðisvanda fái viðeigandi stuðning, óháð búsetu. Enginn ætti að vera án aðstoðar vegna þess eins hvar hann býr. Nú er kominn tími til að þessi vinna verði útfærð í framkvæmd, þar sem ríki og sveitarfélög vinni saman. Þar þarf að tryggja jafnt aðgengi að úrræðum og byggja upp þjónustu sem nær til allra sem þurfa á henni að halda. Heimilisleysi er ekki vandamál Reykjavíkur, það er vandamál okkar allra. Án skýrrar landsstefnu mun vandinn aðeins halda áfram að vaxa og færri fá þá þjónustu sem þeir eiga rétt á. Höfundur skipar 15. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík, er starfsmaður í neyðarskýli og situr í stjórn Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Málefni heimilislausra Reykjavík Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar