Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar 4. apríl 2026 07:00 Með nýrri og öflugri landsbyggðastofnun, Stofnun atvinnuveganna, er markmiðið að einfalda regluverk, fara betur með peninga, og bæta samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Frumvarp mitt þessa efnis er nú til meðferðar á Alþingi. Stofnun atvinnuveganna verður til með sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Samhliða verða verkefni heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga hvað varðar eftirlit með mætvælum færð til nýrrar stofnunar. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er skýrt kveðið á um að einfalda eigi stjórnsýslu, sameina stofnanir, hagræða í ríkisrekstri og auka skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera. Í samræmi við þessa stefnu var eitt af mínum fyrstu verkum í atvinnuvegaráðuneytinu að láta greina fýsileika þess að sameina MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Eftirlitið verður eins – sama hvar þú ert á landinu Niðurstaða þeirrar greiningar var skýr og það er því mat mitt að þessi sameining tikki í öll þau box sem við í ríkisstjórninni lögðum upp með hvað varðar aukna skilvirkni og einföldun regluverks. Til verður öflug stofnun þar sem unnt verður að samræma verklag, einkum varðandi leyfisveitingar og eftirlit, þannig að eftirlit á sviði matvæla og fiskveiða verði eins, sama hvar það fer fram á landinu. Með Stofnun atvinnuveganna verður þjónustan einfaldari og skilvirkari, með færri samskiptaleiðum. Þannig geta einstaklingar og fyrirtæki betur áttað sig á hvert þeir eiga að leita. Markmiðin eru aukið gagnsæi, bætt þjónusta og minna skrifræði. Hvað varðar tilfærslu á verkefnum matvælaeftirlits sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna hafa sinnt þá er sú breyting ákaflega mikilvægur liður í því að bregðast við áminningarbréfi Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, sem íslenskum stjórnvöldum barst í júlí 2024. Í bréfinu er bent á að fyrirkomulag matvælaeftirlits á Íslandi standist ekki kröfur EES-samningsins. Helstu áhyggjuefni varða skort á samræmi, skýrri ábyrgð og yfirstjórn eftirlits og byggir áminningin á umfangsmiklum gögnum úr úttektum allt aftur til 2013. Það er mikið í húfi, ekki síst þegar horft er til hagsmuna íslenskra fyrirtækja sem framleiða matvæli til útflutnings. Ef ekkert verður gert er hætta á að aðgengi íslenskra matvæla, til dæmis íslensks fisks, að sameiginlegum markaði innan EES-svæðisins verði ekki tryggt. Með þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpi til laga um Stofnun atvinnuveganna er brugðist við áminningu ESA með skýrum og afgerandi hætti, en aðrar leiðir sem mögulega væru færar í þeim efnum eru fullreyndar að mati atvinnuvegaráðuneytisins. Rammvillt í völundarhúsi kerfisins Íslenskt atvinnulíf hafi lengi kallað eftir einfaldara og skilvirkara eftirliti með matvælum. Við þekkjum mörg sögur af fólki sem ætlaði að opna lítinn veitingastað eða kaffihús en endaði rammvillt í völundarhúsi of flókins kerfis. Við viljum koma í veg fyrir slíkt og einfaldlega stórbæta þjónustu við fólk og fyrirtæki, meðal annars með öflugum starfsstöðvum sem sinna mikilvægu eftirliti um allt land í einu samræmdu upplýsingakerfi. Á endanum snýst rekstur ríkisins nefnilega um að fara vel með peninga en veita um leið áreiðanlega þjónustu hringinn í kringum landið. Það er mitt leiðarljós sem ráðherra og þannig vil ég vinna. Þess vegna erum við að ráðast í þessar mikilvægu breytingar fyrir ört vaxandi og öflugt íslenskt atvinnulíf. Höfundur er atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hanna Katrín Friðriksson Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar