Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Hólmfríður Gísladóttir skrifar 7. apríl 2026 10:56 Forsvarsmenn Reina Sofía hafa ítrekað neitað Böskum um lán á verkinu og segja það gætu skemmst í flutningunum. Getty/Denis Doyle Héraðsyfirvöld í Madríd og Baskalandi standa nú í hörðum deilum um mögulegt lán á verkinu Guernica, frá Reina Sofía safninu í Madríd til Guggenheim safnsins í Bilbao til að marka þau tímamót að 90 ár eru liðin frá árásum á síðarnefndu borgina.
Guernica, sem er eitt þekktasta verk listmálarans Pablo Picasso, hefur hangið uppi í Reina Sofía frá árinu 1992 og óskum um lán ítrekað verið hafnað. Háværust í deilunum eru Isabel Díaz Ayuso, forseti sjálfsstjórnarsvæðisins Madríd, og Aitor Esteban, leiðtogi þjóðarflokks Baska. Bæði saka hitt um að vera „sveitó“. „Það meikar ekkert sens að skila öllu þangað sem það er upprunið,“ sagði íhaldsmaðurinn Ayuso. „Ef svo væri ættum við að senda öll verk eftir Picasso til Malaga.“ Picasso fæddist í Malaga árið 1881. Ayuso sagði þessa skoðun endurspegla „sveitó hugsunarhátt“ þegar menningin ætti alls staðar heima. Esteban vísaði fullyrðingum Ayuso hins vegar til föðurhúsanna og sagði að ef einhver væri sveitó þá væri það hún, hvers hugmyndir um þjóðlegheit væru að „drekka bjór úti á verönd við bar“. Um er að ræða tilvísun í þrákelkni Ayuso gegn því að loka börum í kórónuveirufaraldrinum. Imanol Pradales, forseti Baskalands, hefur varpað þeirri spurningu fram hvort stjórnvöld á Spáni skorti hugrekki til að færa Guernica. „Þeir drógu Franco úr grafhýsi sínu en geta ekki flutt málverk frá Madríd til Baskalands? Boltinn er hjá þeim.“ Viðfangsefni Guernica eru árásir Ítala og Þjóðverja á bæinn Guernica í spænsku borgarastyrjöldinni en á verkinu má meðal annars sjá látið barn, öskrandi konur, limlestan hermann og loga. Verkið var sýnt á heimssýningunni í París árið 1937 og fór víða um Evrópu og Bandaríkin í kjölfarið. Picasso vildi ekki að það yrði flutt aftur til Spánar á meðan Franco væri við völd og því hékk það í MoMA í New York í mörg ár. Baskar eru ekki þeir einu sem hafa komið að lokuðum dyrum hjá forsvarsmönnum Reina Sofía en árið 2000 neituðu þeir MoMA um að fá verkið að láni.
Spánn Myndlist Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira