Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Lovísa Arnardóttir skrifar 8. apríl 2026 16:55 Rex Heuermann játaði átta morð í dag. Vísir/AP Rex Heuermann hefur játað að hafa myrt sjö konur sem tengjast áralangri rannsókn lögreglu á Gilgo-raðmorðingjanum í Bandaríkjunum. Auk þess viðurkenndi hann að hafa myrt aðra konu sem hann hafði ekki verið ákærður fyrir. Konurnar hurfu á milli 1993 og 2010. Rannsókn málsins spannar mörg ár en Heuermann var ekki grunaður fyrr en árið 2022.
Konurnar hétu Melissa Barthelemy, Megan Waterman, Amber Costello, Maureen Brainard-Barnes, Sandra Costilla, Jessica Taylor og Valerie Mack. Heurmann játaði einnig að hafa myrt Karen Vergata en hefur ekki verið ákærður fyrir dauða hennar. Gilgo-strönd er í Suffolk-sýslu í New York ríki í Bandaríkjunum. Í umfjöllun CBS segir að játningin sé viðsnúningur fyrir Heuermann sem áður hafði neitað sök í öllum ákæruliðum og lýst því yfir að hann vildi að málið færi fyrir dóm. Gloria Allred, lögmaður er fyrir miðju, og aðstandendur kvennanna sem voru myrtar með henni. Þau voru viðstödd þegar Heuermann játaði í dag. Vísir/AP Fyrir dómi sagðist Heurermann hafa notað einnota síma og blekkt konurnar með loforði um peninga. Flestar störfuðu þær við kynlífsvinnu. Hann kyrkti þær og gróf líkamsleifar þeirra á afskekktum stöðum, þar á meðal meðfram einangruðum strandvegi handan flóans þar sem hann bjó, að sögn yfirvalda. Rætt var við bróður Ásu Ellerup, íslenskrar eiginkonu Heuermann, í öðrum þætti Eftirmála, í umsjón Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnar Yaghi, en bróðirinn vill ekki láta nafns síns getið. Þátturinn er frá því í desember í fyrra og er fjallað um hann í fréttinni að neðan. Dómsuppkvaðning í júní Samkvæmt frétt CBS á Heuermann að koma aftur fyrir dóm þann 17. júní til dómsuppkvaðningar. Saksóknaraembættið í Suffolk-sýslu sagði að búist væri við að hann yrði dæmdur í þrjá samfellda lífstíðardóma án möguleika á reynslulausn fyrir dauða Barthelemy, Waterman og Costello. Einnig er búist við samfelldum hundrað ára dómi fyrir morðin á Brainard-Barnes, Taylor, Costilla og Mack. Eiginkona Heuermann, Asa Ellerup, og dóttir þeirra, Victoria, voru viðstaddar í dómsal í dag. Fram hefur komið að Asa er íslensk að uppruna en ólst upp í Bandaríkjunum. Vísir/AP Líkamsleifar sex fórnarlamba, Melissu Barthelemy, Maureen Brainard-Barnes, Amber Lynn Costello, Valerie Mack, Jessicu Taylor og Megan Waterman , fundust í kjarri meðfram Ocean Parkway nálægt Gilgo Beach. Líkamsleifar annars fórnarlambs, Söndru Costilla, fundust í meira en 100 kílómetra fjarlægð í Hamptons. Lögreglan bar einnig kennsl á líkamsleifar Vergata, sem fundust á Fire Island, um 32 kílómetrum vestar, árið 1996, og nálægt Gilgo Beach árið 2011. Fundu líkamsleifar kvennanna 2010 Fram hefur komið í fyrri umfjöllun að morðin hafi líklega átt sér stað á milli 1993 og 2010 en rannsókn málsins hófst ekki af fullum krafti fyrr en 2010 þegar lögregla fann fjölda líkamsleifa kvenna sem hafði verið saknað um árabil meðfram strandlengju Long Island. Fjallað hefur verið um málið í heimildarþáttaröð og kvikmyndinni Lost Girls. Í frétt AP segir að rannsóknarlögreglumenn hafi notað DNA-greiningu og önnur sönnunargögn til að bera kennsl á fórnarlömbin. Í sumum tilfellum tókst þeim að tengja þau við líkamsleifar sem fundust annars staðar á Long Island árum áður. Þar kemur einnig fram að það hafi svo verið 2022 sem rannsóknarlögreglumenn hafi bent á Heuermann sem grunaðan með því að nota skráningargagnagrunn ökutækja til að tengja hann við pallbíl sem vitni sagðist hafa séð þegar eitt fórnarlambanna hvarf árið 2010. Bjó nærri sandströndinni Heuermann bjó í áratugi í Massapequa Park, í um 25 mínútna akstursfjarlægð yfir brú sem liggur yfir South Oyster Bay, að sandströndinni þar sem líkamsleifar kvennanna fundust. Talið er að sum fórnarlambanna hafi horfið þaðan. Eftir að pallbíllinn fannst gaf kviðdómur leyfi fyrir meira en 300 stefnum og húsleitarheimildum, sem gerði rannsóknarteyminu kleift að kafa ofan í líf Heuermanns. Rannsóknarlögreglumenn söfnuðu reikningsgögnum fyrir einnota síma sem hann er sagður hafa notað til að skipuleggja fundi með fórnarlömbunum, endurprófuðu DNA sem fannst með líkunum og skoðuðu ítarlega Internetsögu Heuermanns, sem sýndi að hann hafði skoðað ofbeldisfullt pyntingaklám og sýnt mikinn áhuga á morðunum á Gilgo Beach og endurnýjaðri rannsókn. Farsímagögn sýndu að Heuermann var í sambandi við sum fórnarlambanna rétt áður en þau hurfu, að sögn rannsakenda. Fengu erfðaefni hans úr ruslinu Til að ná í erfðaefni Heuermanns elti eftirlitsteymi rannsóknarhópsins hann á Manhattan, þar sem hann starfaði, og fylgdist með þegar hann henti afgöngum af hádegismatnum sínum, kassa með hálfétnum pítsuskorpum, í ruslatunnu á gangstéttinni. Rannsakendur tóku kassann og sendu hann á rannsóknarstofu, sem bar saman erfðaefni hans úr skorpunni við karlmannshár sem fannst á strigapoka sem notaður var til að binda eitt fórnarlambanna. Heuermann var svo handtekinn í júlí 2023. Eftir handtöku Heuermanns eyddu rannsóknarlögreglumenn meira en tólf dögum í að leita í garði hans og húsi, þar sem þeir fundu hvelfingu í kjallara sem innihélt 279 vopn. Á vef AP segir að í tölvu hans hafi fundist það sem þeir lýstu sem „vinnuteikningu“ fyrir morðin, þar á meðal röð gátlista með áminningum um að takmarka hávaða, þrífa líkin og eyða sönnunargögnum. Á síðasta ári hafnaði dómari beiðni Heuermanns um að útiloka DNA-sönnunargögn sem fengin voru með háþróaðri tækni sem saksóknarar segja að sanni að hann sé morðinginn.
Gilgo Beach-raðmorðinginn Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Ákærður fyrir sjöunda morðið Rex Heuermann, sem grunaður er um að hafa framið Gilgo Beach morðin svokölluðu, hefur verið ákærður fyrir sjöunda morðið. Saksóknarar segja Heuermann vera raðmorðingja og er nú sakaður um morðið á vændiskonunni Valerie Mack, sem hvarf fyrir rúmum tveimur áratugum. 17. desember 2024 16:03 Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. 17. október 2024 10:22 Ása segist ætla að leyfa eiginmanni sínum að „njóta vafans“ Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona mannsins sem er grunaður um að vera Gilgo Beach-raðmorðinginn, sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hún segist ætla að leyfa manninum sínum að „njóta vafans“. 15. mars 2024 06:41 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Sjá meira
Ákærður fyrir sjöunda morðið Rex Heuermann, sem grunaður er um að hafa framið Gilgo Beach morðin svokölluðu, hefur verið ákærður fyrir sjöunda morðið. Saksóknarar segja Heuermann vera raðmorðingja og er nú sakaður um morðið á vændiskonunni Valerie Mack, sem hvarf fyrir rúmum tveimur áratugum. 17. desember 2024 16:03
Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. 17. október 2024 10:22
Ása segist ætla að leyfa eiginmanni sínum að „njóta vafans“ Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona mannsins sem er grunaður um að vera Gilgo Beach-raðmorðinginn, sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hún segist ætla að leyfa manninum sínum að „njóta vafans“. 15. mars 2024 06:41