Nýtt framboð í Reykjavík á elleftu stundu Kjartan Kjartansson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 10. apríl 2026 11:24 Efstu þrír frambjóðendur Góðan daginn, frá vinstri. Ingimar Þór Friðriksson, Hjördís Dröfn Vilhjálms og Torfi Markússon. Góðan daginn Undirskriftasöfnun fyrir Góðan daginn, nýtt framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur hófst í gærkvöldi, hálfum sólarhring áður en framboðsfrestur rennur út. Hópurinn vill meðal annars endurskoða borgarlínu og Sundabraut.
Framboðsfrestur fyrir sveitarstjórnarkosningarnar rann út í hádeginu. Fulltrúar nýja framboðsins náðu að skila inn gögnum áður en fresturinn rann út en ekki nægilegum fjölda undirskrifta. Þeir fengu sólarhringsfrest til þess að skila þeim inn. Ingimar Þór Friðriksson, tölvunarfræðingur sem skipar eitt efstu sæti listans, sagðist í stuttu samtali við Vísi ekki hafa tíma til að ræða framboðið vegna þess að hann ætti fund með kjörstjórn. Hann sagði að byrjað hefði verið að safna undirskriftum til stuðnings framboðsins í gærkvöldi og vísaði á vefsíðu þess um upplýsingar um það. Á vefsíðunni er Ingimar sagður skipa eitt þriggja efstu sæta listans ásamt þeim Hjördísi Dröfn Vilhjálms, leiðtoga- og teymisþjálfa og Torfa Markússyni, rekstrarfræðingi. Auk þeirra er Jón L. Árnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Lífsverks, sagður standa að baki framboðinu. Ingimar hefur setið í nefndum fyrir Pírata samkvæmt vefsíðu Reykjavíkurborgar. Hann gaf kost á sér í prófkjöri Pírata fyrir alþingiskosningar árið 2021. Torfi er sagður hafa sagt upp störfum hjá ráðgjafarfyrirtækinu Intellecta til þess að koma framboðinu á laggirnar og manna listann. Einkabíllinn ofarlega á baugi Framboðið gagnrýnir núverandi meirihluta fyrir að ganga gegn vilja íbúa borgarinnar í skóla- og skipulagsmálum sérstaklega. Það vill endurskoða borgarlínu og Sundabraut, bæta fyrirkomulag bílastæðagjalda og tryggja lágmarksfjölda bílastæða á hverja íbúð. Þá segir það að þétting byggðar eigi aðeins að eiga sér stað í sátt við íbúa og innviði hverfa. Torfi sagði í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar að hann hefði langað til þess að stofna „hlutlaust“ framboð frá síðasta sumri. Hann vildi líta á stjórn borgarinnar eins og stjórn í stóru fyrirtæki og reka hana þannig. Frambjóðendurnir telji margt hægt að gera betur hjá borginni.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Borgarstjórn Góðan daginn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira