Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Agnar Már Másson skrifar 13. apríl 2026 00:05 Péter Magyar, formaður stjórnarandstöðuflokksins Tisza, heldur á fána Ungverjalands fyrir utan þinghúsið. AP „Ungverjar sögðu já við Evrópu í dag,“ sagði Péter Magyar, formaður Tisza-flokksins sem vann stórsigur ungversku þingkosningunum í kvöld. „Þeir sögði já við frjálst Ungverjaland,“ hélt hann áfram í ræðu á kosningavöku flokksins. Hann bað forseta Ungverjalands um að veita flokknum stjórnarmyndunarumboð og segja svo strax af sér. „Ég bið allar strengjabrúðurnar sem hafa verið við völd síðustu sextán ár um að gera slík hið sama,“ bætti hann við.
Kjósendur í Ungverjalandi boluðu í dag út forsætisráðherranum Viktor Orban sem hefur setið við stjórn landsins í 16 ár. Sigurvegari kosninganna, Péter Magyar, formaður Tisza og fyrrverandi stuðningsmaður Orbáns, verður að líkindum næsti forsætisráðherra landsins. Þegar um 99 prósent atkvæða höfðu verið talin hafði miðhægri Tisza-flokkurinn 53 prósent atkvæða. Fidesz, íhaldsflokkur Orbáns, hlaut 38 prósent atkvæða og fjarhægri flokkurinn Mi Hazánk hlaut tæp sex prósent atkvæða. Magyar og félagar hafa því 138 af 199 sætum í ungverska þinginu, sem dugir til þess að koma stórum breytingum í gegn en til þess þarf tvo þriðjunga af þingheimi. Suðningsmenn Magyars í stuði á kosningavöku Tisza í kvöld.AP Niðurstöðurnar mega teljast þungt áfall fyrir Orbán sem hefur lýst kosningunum sem „sársaukafullum“. Á sínum valdaferli hefur Orban grafið undan lýðræðisstofnunum, fjölmiðlafrelsi og kosningakerfum landsins. Hann hefur til að mynda samið nýja stjórnarskrá og náð þvílíkri stjórn á fjölmiðlum landsins að honum hefur tekist að koma algjörlega í veg fyrir það að Magyar sé boðið að tala í ríkissjónvarpi Ungverjalands. Magyar kvaðst ætla að berjast gegn spillingu. Framfærslukostnaður, heilbrigðisþjónusta og almenningssamgöngur voru ofarlega á baugi hjá honum en hann hét því einnig að endurreisa samskipti Ungverjalands við Evrópusambandið og NATO en þau tengsl höfðu stirðnað undir stjórn Orbáns. Orbán naut stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta og J.D. Vance varaforseti heimsótti Ungverjaland í aðdraganda kosninganna. Enn fremur er Orbán með náin tengsl við rússnesk stjórnvöld í Kreml og hljóta Evrópuleiðtogar nú að anda léttar þar sem Orbán hefur oft reynst þeim Þrándur í Götu þar sem hann hefur ítrekað beitt neitunarvaldi og komið í veg fyrir að ESB samþykki aukinn fjárstuðning við Úkraínu. Það er því ekki að furða að evrópskir leiðtogar voru fljótir að óska Magyar fljótt til hamingju. Orbán tapaði.AP Engin viðbrögð hafa heyrst úr Moskvu frá því að úrslitin lágu fyrir en ljóst er að þessi niðurstaða er slæm fyrir Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Nafni hans og starfsbróðir í Úkraínu, Volodimír Selenskí, er hins vegar sáttur og hefur óskað Magyar til hamingju. Hann sagði á X að hin „uppbyggilega nálgun“ hfeði sigrað í kvöld. Í ræðu til tugþúsunda fagnandi stuðningsmanna á kosningaveislu við Dóná sagði Magyar að kjósendur hans hefðu endurskrifað sögu Ungverjalands. Utanríkisráðherra Úkraínu kallaði kosningarnar vendipunkt fyrir Ungverjaland. „Rússar heim!“ „Í kvöld sigraði sannleikurinn lygina. Í dag unnum við vegna þess að Ungverjar spurðu ekki hvað heimalandið gæti gert fyrir þá. Þeir spurðu hvað þeir gætu gert fyrir heimalandið,“ sagði Magyar í anda John F. Kennedy, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. „Þið funduð svarið. Og þið fylgduð því eftir.“ Á götum Búdapest flautuðu ökumenn og spiluðu lög sem beindust gegn stjórnvöldum. Fólk gekk um göturnar, söng og hrópaði. Margir í gleðskapnum sungu „Ruszkik haza!“ eða „Rússar heim!“ en sú setning var mikið notuð í byltingunni gegn Sovétríkjunum í Ungverjalandi árið 1956 og hefur orðið sífellt algengari í ljósi tengsla Orbáns við Moskvumenn. Frá fögnuðinum í kvöld.AP Orbán er sá leiðtogi sem hefur setið lengst í ESB og einn af stærstu andstæðingum Evrópusambandsins. Nú þurfa ráðamenn í Brussel að bíða og sjá hvort, og þá hvernig, Magyar breyti afstöðu Ungverjalands í málefnum Úkraínu. Nýlegar uppljóstranir hafa sýnt að háttsettur ráðamaður í ríkisstjórn Orbáns deildi reglulega innihaldi umræðna innan ESB með Moskvu, sem leiddi til ásakana um að Ungverjaland væri að vinna fyrir Rússland innan sambandsins. Stuðningsmenn Magyar fyrir utan þinghúsið í kvöld.AP Í Búdapest sagði Marcell Mehringer, 21 árs, við AP að hann væri að kjósa „fyrst og fremst svo að Ungverjaland verði loksins svokallað evrópskt land, og svo að ungt fólk, og í raun allir, sinni borgaralegri skyldu sinni til að sameina þessa þjóð svolítið og brjóta niður þessi landamæri sem sprottin eru af hatri.“
Ungverjaland Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Evrópusambandið Kosningar í Ungverjalandi Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Fleiri fréttir Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Sjá meira