Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar 15. apríl 2026 10:00 Kveikur tók fyrir fíkniefnavandann á Íslandi 14. apríl eins og hann birtist á götunni. Ég hef á síðustu árum tekið þátt í norrænu rannsóknarsamstarfi um mál tengd fíkniefnum og var einn viðmælenda Kveiks. Í greininni er komið inn á örfáa punkta sem vonandi varpa ljósi á málefnið. Sérstaða fíkniefna í norrænu refsilöggjöfinni Íslensku fíkniefnalögin eru ekki ósvipuð norrænni löggjöf um fíkniefni. Löggjöfin á Norðurlöndum er tiltölulega hörð og refsistefnu fylgt af festu. Í hnotskurn hafa Norðurlöndin lagt höfuðáherslu á að stöðva framboð fíkniefna. Dómar eru yfirleitt þungir og varsla jafnvel neysla fíkniefna refsiverð eins og í Svíþjóð. Aftur á móti er refsipólitíkin í alþjóðasamhengi að öðru leyti tiltölulega mild á Norðurlöndum, þekkt í afbrotafræðinni sem skandinavíska undantekningin. Vægar refsingar, lág fangatala og mannúðleg fangelsi. Árangurinn er almennt talinn jákvæður, ítrekunartíðni brota í lægri kanti og alvarleg brot færri í Skandinavíu en í hinum engilaxneska heimi þar sem refsipólitíkin er mun harðari. Samt sem áður hefur löggjöfin á Norðurlöndum harðnað á síðustu misserum einkum í Svíþjóð og Danmörku. Ótti við erlend glæpagengi og vaxandi ofbeldi hefur ýtt undir þær raddir að hertar refsingar séu svarið við breyttum heimi. Fjöldi vistaðra í fangelsi hefur því í kjölfarið vaxið mjög og vandi vegna afplánunar þyngst. Árangur refsistefnunnar og nýjar áherslur Árangur refsistefnunnar í fíkniefnamálum er álitamál. Sumir telja stefnuna halda aftur af fjölda þeirra sem prófa og neyta fíkniefna og dragi því úr heildarumfangi fíkniefnaneyslu í samfélaginu. Aftur á móti er þungur fíkniefnavandi til staðar á Norðurlöndum og dauðsföll vegna neyslu fíkniefna tíð á alþjóðavísu. Stjórnvöld hafa skiljanlega haft áhyggjur af þessari þróun. Yfirvöld hafa því íhugað aðra kosti til að takast á við vanda þeirra sem neyta harðra efna. Skaðaminnkandi áherslur, eins og nálaskiptiþjónusta, og tillögur um afnám refsinga fyrir vörslu efna til eigin nota hafa komið fram og hlotið brautargengi ekki síst í Noregi. Víða á Norðurlöndum hefur komið fram vilji til að taka á vanda verst setta hópsins með nýjum hætti. Líta á þá sem skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins sem ekki eigi að refsa enda samræmist það varla gildum velferðarþjóðfélagsins að refsa sjúklingum. Neysla fíkniefna er aftur á móti ekki bara bundin við langt leidda fíkla heldur er mun almennari í samfélaginu og þekkist í raun innan allra þjóðfélagshópa. Við sjáum td skýr merki í fráveitukerfi okkar hér á höfuðborgarsvæðinu um neyslu sterkra efna einsog kókaíns. Neyslumælingar gefa einnig vísbendingar um að neyslan er ekki bara bundin við þá sem eiga í vanda með neyslu sína. Nýjar nálganir í fíkniefnamálum eins og afnám refsinga fyrir vörslu fíkniefna til eigin nota verða aftur á móti flóknari þegar kemur að þeim hópi sem neytir fíkniefna í afþreyingarskyni og getur væntanlega valið hvort efnanna sé neytt eða ekki. Líklega er erfitt fyrir samfélagið að horfa átölulaust á fólk nota fíkniefni og gefa neyslunni þannig visst lögmæti án þess að um lögleiðingu sé að ræða. Þarna er fyrirstaða sem margir eiga erfitt með að líta framhjá. Fyrir utan að neysla fíkniefna er áhættusöm einnig fyrir frístundaneytendur. Auk þess sem stór hluti hagnaðar alþjóðlegrar brotastarfsemi kemur frá kaupum frístundaneytenda, þeir halda í raun uppi glæpagengjum sem fá mest af sínum hagnaði frá ólöglegri fíkniefnasölu. Stórar haldlagningar fíkniefna á Íslandi og erlendis virðast ekki slá á markaðinn nema tímabundið; hann nær sér yfirleitt fljótt aftur og verðið breytist ekki – framboðið og eftirspurnin er svo mikil. Rannsóknir okkar við HÍ sýna að þeir sem segjast hafa áhuga á að ná sér í fíkniefni á Íslandi telja það auðvelt; efnin víða aðgengileg á netinu. Ekki er auðvelt að stöðva innflutning eða framleiðslu fíkniefna í landi sem er opið og frjálst þótt toll- og lögregluyfirvöld geri sitt besta við að framfylgja lögunum. Okkur tekst ekki einu sinni að halda öryggisfangelsinu Litla-Hrauni frá fíkniefnum, þrátt fyrir miklar ráðstafanir og töluverðan kostnað. Þungir dómar sem fallið hafa hér á landi eða erlendis virðast ekki heldur hafa teljandi áhrif á markaðinn. Alltaf koma inn nýir aðilar til að mæta eftirspurninni freistingin á hinum ólöglega markaði um hagnað er alltaf sterkari en ætluð fælingaráhrif refsinga. Og nú situr nær helmingur fanga hjá okkur inni fyrir fíknibrot aldrei fleiri með öllum þeim kostnaði sem því fylgir og hundruðir bíða eftir afplánun. Burðardýr sem hingað koma með efni erlendis frá handtekin við komu eru iðulega í þröngri stöðu jafnvel þolendur mansals föst í neti glæpagengja og enda í fangelsi hér á landi áður en þeim erlendu er vísað úr landi. Eftirgjöf varðandi bæði dóma og afplánun fíknibrota myndi vafalítið létta á fangelsiskerfinu sem „algjörlega er komið að þolmörkum“ eins og nýleg yfirlýsing fangavarða greinir frá. Kostir í stefnumótun Hvað á að gera varðandi fíknivandann? Spurning er hvort ekki eigi að taka eftirspurnarhliðina fastari tökum, hvers vegna svo margir festast í þungri neyslu. Rannsóknir sýna að margir þeirra eiga í margvíslegum persónulegum og félagslegum vanda sem þarf að mæta, áföll, ofbeldi og vanræksla. Hörð refsistefna ýtir þeim út á jaðarinn þar sem enga vernd er að fá og einungis eykur á þjáningu þeirra. Mikilvægt er að nálgast þau með skaðaminnkandi hætti og uppbyggilegri ráðgjöf og meðferð. Bjóða þjónustu og aðstoð við að ná tökum á vandanum eða lifa með honum án fordæmingar. Þörf er á reglustýringu og eftirliti í stað lögmála frumskógarins sem ríkja núna með öllu því ofbeldi sem við heyrum af úr undirheimunum. Í þessu samhengi verður starf lögreglunnar á götunni jafnvel enn brýnna en það er í dag, þjónusta veitt án ótta og haldlagningar neysluskammta. Varðandi frístundaneytendur skipta fræðsla og forvarnir mestu, hvaða áhætta fylgir neyslu vímuefna og hvað helst ber að varast. Forðast ber kúlvæðingu áfengis- og vímuefna sem réttlætir neyslu þeirra og sess í skemmtanaflóru landsins. Við vitum samt að fíkn fer ekki í manngreinarálit og getur komið upp í hvaða hópi sem er frístundaneytendur ekki undanskildir. Niðurstaða Endurskoðun löggjafarinnar og stefnunnar í fíkniefnamálum er löngu tímabær. Farsælast til lengri tíma er að þróa nýjar leiðir í samstarfi við aðrar þjóðir og alþjóðastofnanir enda vandinn alþjóðlegur. Lykilatriði er að líta á vanda vegna fíkniefna í auknum mæli sem félags- og heilbrigðismál frekar en refsiverða háttsemi. Ýmis merki má sjá um þróun í þá átt hér á landi eins og neyslurými Ylju í Reykjavík sýnir. Nýleg skýrsla heilbrigðisráðuneytisins um skaðaminnkun er líka þarft innlegg. Ljóst samt að skilvirkari aðgerða er þörf í bæði löggjöf og framkvæmd. Ekki síður þarf að efla ábyrgðarkennd borgaranna fyrir lífi sínu og heilsu í samræmi við aðrar samfélagshugsjónir okkar um frelsi og réttindi borgaranna. Höfundur er prófessor í afbrotafræði við HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkniefnabrot Helgi Gunnlaugsson Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun