Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Sindri Sverrisson skrifar 16. apríl 2026 11:29 Albert Brynjar Ingason tæki sig vel út í búningi Bayern München en myndi ekki skora mörg mörk samkvæmt gervigreindinni. Mynd búin til með gervigreind „Gervigreindin er þekkt fyrir að vera mesta já-manneskja ever en þú fékkst þetta bara beint í andlitið,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson í hláturskasti í Meistaradeildarmörkunum. Gervigreindin hafði þá svarað spurningu um hve mörg mörk Albert Brynjar Ingason gæti skorað á einni leiktíð með Bayern München.
Bayern sló Real Madrid út í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld, með 4-3 sigri þar sem Aleksander Pavlovic, Harry Kane, Luis Días og Michael Olise skoruðu mörk Bayern. Í Meistaradeildarmörkunum eftir leik spunnust upp umræður um hve „auðvelt“ væri að skora mörk sem framherji Bayern. Að hvaða framherji sem er myndi skora fyrir liðið, jafnvel fertugur Albert Brynjar Ingason, en því var gervigreindin ósammála eins og sjá má í spilaranum hér að neðan: Klippa: Hvað ef Albert væri framherji Bayern? „Harry Kane hjá Tottenham var frábær framherji en hann var ekki með þessar tölur [sem hann er með hjá Bayern]. Leikirnir fyrir Bayern München eru auðveldari en margir leikir í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Aron Jóhannsson. Aron vildi þannig meina að jafnvel kollegi hans í settinu, Albert, gæti skorað fullt af mörkum fyrir Bayern. En þrátt fyrir að Albert hafi verið afar slyngur markaskorari á sínum tíma þá var gervigreindin ekki sammála Aroni. Hún fékk þessa spurningu: Hversu mörg mörk myndi Albert skora fyrir Bayern München á heilu tímabili í þýsku deildinni, ef hann spilaði alla leiki? Og svar gervigreindarinnar var umbúðalaust: „Jafnvel þó að hann myndi einhvern veginn ná því að spila alla leiki þá myndi Albert Ingason mjög sennilega skora á bilinu 0-2 mörk.“ Höfðu menn vægast sagt gaman af þessu svari eins og sjá má í spilaranum hér að ofan.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira