Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 11:30 Mikið mun mæða á Ayden Heaven í kvöld. Molly Darlington/Copa/Getty Images Hinn nítján ára gamli Ayden Heaven er eini miðvörðurinn sem Michael Carrick hefur úr að velja fyrir mikilvægan leik Manchester United gegn Chelsea í kvöld.
Leny Yoro mun missa af leiknum vegna meiðsla samkvæmt The Athletic og óttast er að hann gæti verið frá til lengri tíma. Frakkinn ferðaðist ekki með United-liðinu til Lundúna í gær. Bæði Harry Maguire og Lisandro Martinez verða í leikbanni þegar Manchester United mætir Chelsea í kvöld. Maguire fékk einn auka leik í bann fyrir agabrot í leik gegn Bournemouth en Lisandro Martinez fékk rautt spjald í síðasta leik gegn Leeds fyrir hártog. Matthijs de Ligt hefur svo verið á meiðslalistanum alveg síðan í nóvember og verður ekki með gegn Chelsea. Í fjarveru þeirra fjögurra er aðeins einn miðvörður eftir hjá Manchester United, hinn nítján ára gamli Ayden Heaven. Búist var við því að Yoro og Heaven yrðu í byrjunarliðinu en nú mun væntanlega annar hvor bakvörðurinn, Noussair Mazraoui eða Luke Shaw, leysa miðvarðarstöðuna. Miðjumaðurinn Manuel Ugarte kemur líka til greina en hann gæti þurft að vera á miðjunni ef Kobbie Mainoo er ekki klár í slaginn. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Manchester United og sigur myndi gefa liðinu tíu stiga forskot á Chelsea í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Chelsea og Manchester United mætast í beinni útsendingu á Sýn Sport klukkan 19:00 í kvöld.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira