Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Árni Sæberg skrifar 21. apríl 2026 14:56 Þórdís Kolbrún hóf störf á Alþingi þegar hún var 25 ára. Vísir/Vilhelm Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks til þrettán ára, flutti sína síðustu ræðu á Alþingi í dag og nýtti hana til að þakka þingheimi og starfsmönnum þingsins fyrir. Forseti Alþingis þakkaði henni sömuleiðis fyrir á meðan hann reyndi að klökkna ekki.
Líkt og fjallað var um í gær hefur utanríkisráðherra skipað Þórdísi Kolbrúnu í embætti sendiherra til fimm ára. Ekki hefur verið greint frá staðsetningu en heimildir Vísis herma að hún verði sendiherra í Lundúnum í Bretlandi. Þórdís nýtti liðinn störf þingsins á þingfundi dagsins til þess að þakka fyrir árin á Alþingi. „Þau eru orðin 13 talsins þótt í ólíkum hlutverkum hafi verið. Mig langar að byrja á því að þakka starfsfólki Alþingis fyrir samstarfið, fyrir allt sem það hér gerir; hvort sem það er hér á skrifstofu, fólkið sem hellir upp á kaffið, tölvudeildinni sem ég hef mjög oft haft samband við og öll hin sem gera okkur kleift að sinna vinnunni okkar og ganga í þau störf sem þarf að ganga í. Hingað mætti ég fyrst 25 ára gömul og fylgdist með öllu sem ég gat eins og ugla til að læra og skilja stjórnmálin og pólitíkina.“ Gætum verið að lifa tíma þar sem áratugir líða á vikum Hún sagði að stundum líði áratugir þar sem ekkert gerist og svo væru vikur þar sem áratugir líða. „Við gætum verið að lifa slíka tíma í heimssögunni og slíkir tímar gera miklar kröfur til okkar sem gegnum ábyrgðarstöðum í samfélaginu. Allir þeir sem vilja njóta frelsis þurfa að hafa fyrir því og allar þjóðir sem vilja vera fullvalda og sjálfstæðar þurfa að vanda sig. Ég held að upp séu komnir tímar þar sem þörf verður á meiri stjórnmálum og minni pólitík. Við búum við það hér að hafa mikið samfélagslegt traust. Það hefur verið mér tíðrætt en Alexander Stubb, forseti Finnlands, orðaði það sem hið norræna gull.“ Hún héldi að það væri eitthvað sem Íslendingar ættu að tileinka sér, að muna og standa vörð um og leika sér ekki að eldinum þegar kemur að þessu samfélagslega trausti því það væru verðmæti sem ekki er hægt að setja pening á og þeir gætu þurft svo verulega á því að halda. Alþingismenn fái að þjóna himnesku landi „Megum við áfram vera raunverulega frjáls og halda áfram að njóta þeirrar einstöku gæfu að fá að búa í farsælu, öruggu og réttlátu samfélagi, í okkar himneska landi sem við eigum öll saman og við alþingismenn fáum að þjóna. Ég vil því þakka fyrir mig af öllu hjarta. Gangi ykkur háttvirtum þingmönnum vel í ykkar störfum. Ég þakka fyrir samstarfið öll þessi ár, þvert á flokka, þar sem við höfum getað þroskað samtöl, vináttu og rökræður. Ég óska ykkur velfarnaðar og góðs gengis,“ sagði hún að lokum og uppskar þónokkur „Heyr, heyr!“ úr þingsal. „Af þessu tilefni vill forseti þakka háttvirtum fyrsta þingmanni Suðvesturkjördæmis — og reyna að klökkna ekki — hlý orð í garð starfsfólks Alþingis. Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur eru þökkuð góð samskipti og samvinna öll hennar ár á Alþingi. Hún er kært kvödd að sinni og óskað alls hins besta á lífsins vegi,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, að lokinni ræðu Þórdísar Kolbrúnar.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Vistaskipti Tímamót Utanríkismál Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira