Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. apríl 2026 18:33 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mælir fyrir breytingu á útlendingalögum sem felur meðal annars í sér að „Dyflinarsamstarfið“ verður að „AMMR-samstarfinu“. Vísir/Vilhelm Dómsmálaráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi til breytingar á útlendingalögum og lögreglulögum sem felur meðal annars í sér styttri kærufresti fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og skýrari stjórn á landamærunum. Formaður Miðflokksins segir frumvarpið fela í sér afnám Dyflinarreglugerðarinnar og aðlögun að Evrópusambandinu á einu erfiðasta sviðinu.
Með breytingunni eru skuldbindandi ákvæði reglugerða verndar- og fólksflutningasamkomulags (AMMR) ESB lögfest. Samkvæmt frumvarpinu er markmið samkomulagsins að styrkja stjórnun ytri landamæra Schengen-svæðisins, efla samræmda framkvæmd milli ríkja og stuðla að skilvirkari meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. „Hér er verið að einfalda kerfið, það er verið að stytta kærufresti og Evrópa er öll að stilla saman strengi um það að ná betri stjórn á landamærum og verndarkerfið í heild sinni,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samtali við fréttamann að ríkisstjórnarfundi loknum í morgun. Í stóra samhenginu feli breytingarnar í sér skýrari stjórn á landamærum, einfaldara regluverk og styttri kærufresti og þannig meiri fyrirsjáanleika fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. „Það er gott upp á væntingar að gera, að við séum ekki að gefa fólki væntingar sem standast síðan ekki skoðun, og einfaldara fyrir kerfin að vinna úr málum.“ Heiti reglugerðarinnar breytist Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði í viðtali við Reykjavík síðdegis að breytingarnar fælu í sér afnám Dyflinarreglugerðarinnar en Þorbjörg Sigríður segir það af og frá. „Það er óbreytt staða hvað það varðar, þetta hjarta í kerfinu um að ríki sem tekur við umsókn beri ábyrgð á málinu. Heiti reglugerðarinnar er annað,“ segir Þorbjörg Sigríður. Í 6. grein frumvarpsins segir að orðinu „Dyflinarsamstarf“ sé í útlendingalögum skipt út fyrir orðið „AMMR-samstarf“. Hún bendir á að Danir, sem reki býsna harða útlendingastefnu, séu hrifnir af regluverkinu og að Norðurlöndin öll styðji það. „En ég sé að þetta vekur tilfinningar hjá Miðflokknum ásamt Ungverjum og Póllandi,“ segir Þorbjörg Sigríður. Með frumvarpinu eru kærufrestir vegna synjunar umsókna um alþjóðlega vernd styttir auk þess sem kæra frestar ekki réttaráhrifum. Þannig fari umsækjendur úr landi og verði þar meðan þeir fá úrlausn sinna mála. „Mér hefur fundist sem ráðherra útlendingamála núna eitt og hálft ár, þegar ég sit fundi með kollegum mínum í Evrópu, þá er tónninn þar töluvert harður. Hann er harðari en hann hefur verið á Íslandi. Og ég sé þetta miklu frekar þannig að við séum að nálgast þessi ríki, hvað það varðar.“ Mörg ESB-ríki muni hafna pakkanum Sigmundur Davíð sagði í Reykjavík síðdegis að samkomulagið gangi út á að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Brussel fái völd til að senda hælisleitendur sem koma til Evrópulanda, til þess lands sem henni lystir og að löndunum beri að taka við þeim hælisleitendum. „Þetta myndi þýða að við misstum auðvitað enn frekar stjórn á okkar landamærum og þetta myndi líka þýða afnám Dyflinnarreglugerðarinnar, sem er mjög mikilvæg reglugerð og við hefðum átt að nýta í miklu ríkari mæli, og gengur í skemmstu máli út á það að mönnum beri að sækja um hæli í fyrsta örugga landinu sem þeir koma til. Og það land meti hvort menn fái hæli eða ekki.“ Líkt og fram hefur komið segir dómsmálaráðherra einungis nafn reglugerðarinnar breytast en ekki inntak hennar. Sigmundur segir málið umdeilt innan ESB og alvarlegar athugasemdir hafi komið frá stjórnvöldum í mörgum Evrópulöndum, þar með töldum Póllandi, Danmörku, Svíþjóð, Austurríki og Tékklandi. „ESB ákveður engu að síður að innleiða þetta og gera kröfu um að aðildarlöndin samþykki þetta. En mörg þeirra munu einfaldlega hafna því, nema Ísland, þar sem það á að setja okkur þarna inn án þess að við þurfum á því að halda og getur leitt til þess að við missum hérna algjörlega stjórn á því hverjir koma til Íslands og hverjir fá að vera hér.“ Hann segir tímasetningu frumvarpsins koma sér á óvart, í ljósi atkvæðagreiðslunnar í ágúst. „Það hefur verið mikil umræða um það að undanförnu hvað felist í þeim valkostum sem boðið er upp á í þjóðaratkvæðagreiðslunni og stjórnvöld reynt að gera lítið úr því sem Evrópusambandið sjálft var þó búið að útskýra sem forsendur viðræðna við okkur, að þær gengju út á aðlögun að sambandinu. Það er einhvern veginn reynt að komast hjá því að ræða þetta eða gera lítið úr því og á akkúrat þeim tímapunkti skellir ríkisstjórnin á dagskrá máli sem snýst um aðlögun á erfiðasta sviðinu, einu af því allra erfiðasta, áður en þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram.“
Hælisleitendur Innflytjendamál Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Viðreisn Miðflokkurinn Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira