Ísland niður um sæti en berst við tvö af þremur bestu í heimi Sindri Sverrisson skrifar 21. apríl 2026 17:31 Alexandra Jóhannsdóttir og Sandra María Jessen voru auðvitað svekktar eftir tapið gegn Englandi í ljósi þess hve nálægt íslenska liðið var því að ná í stig úr leiknum. vísir/Anton Stelpurnar okkar í íslenska fótboltalandsliðinu fóru niður um eitt sæti og eru 17. besta landslið heims, samkvæmt nýjasta heimslista FIFA.
Ísland missti Kína upp fyrir sig eftir 1-0 tapið nauma gegn Evrópumeisturum Englands á laugardaginn og 1-0 sigurinn gegn Úkraínu nokkrum dögum fyrr. Íslenska liðið missti Kína upp fyrir sig en er áfram í 10. sæti yfir bestu landslið Evrópu, rétt fyrir ofan lærimeyjar Elísabetar Gunnarsdóttur í belgíska landsliðinu. Það er til marks um það í hve erfiðum riðli Ísland er í, í undankeppni HM 2027, að tvær bestu Evrópuþjóðirnar á heimslistanum eru Spánn og England. Þær ensku fóru upp fyrir Þýskaland á nýjasta listanum og heimsmeistarar Spánar eru áfram á toppnum. Þegar horft er til allra þjóða heims er Spánn jafnframt á toppnum og England í 3. sæti en á milli þeirra eru Bandaríkin. Fjórða liðið í riðli Íslands, Úkraína, er hins vegar í 35. sæti heimslistans. Næstu leikir Íslands eru á útivelli gegn Úkraínu 5. júní og svo gegn Spáni á Laugardalsvelli 9. júní. Liðið er í 3. sæti síns riðils, með þrjú stig, og berst við Úkraínu um það sæti sem gefa ætti umtalsvert auðveldari leið í umspili fyrir HM heldur en 4. sæti auk þess að tryggja áframhaldandi veru í A-deild Þjóðadeildarinnar. Standings provided by Sofascore
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira