Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar 26. apríl 2026 18:02 Í nýlegri umfjöllun í norska miðlinum Nationen er fjallað um aukna óvissu í aðgengi að lykilaðföngum landbúnaðar. Miklar breytingar hafa orðið á verði mikilvægra aðfanga í kjölfar átakanna fyrir botni Persaflóa sem hafa ekki aðeins leitt til verðhækkana á mikilvægum hrávörum heldur einnig óvissu um framboð þeirra. Athyglin hefur að miklu leyti beinst að áburði, sem eðlilegt er í ljósi tengsla áburðarverðs við orkuverð. Framleiðsla köfnunarefnisáburðar er mjög orkufrek og byggir á umbreytingu köfnunarefnis úr andrúmslofti með aðstoð vetnis. Þá bendir margt til þess að fleiri aðföng séu undir, og þar er eldsneyti stærsti óvissuþátturinn. Landbúnaður er háður stöðugu aðgengi að eldsneyti á öllum stigum virðiskeðjunnar – frá vinnuvélum á akri til flutninga á aðföngum og afurðum. Í fyrrnefndri umfjöllun er rætt við Christian Anton Smedshaug hagfræðing, sem bendir á að óvissan snúi ekki lengur eingöngu að verði aðfanga heldur einnig að framboði þeirra. Þar með er ekki lengur sjálfgefið að hægt sé að bæta upp skort á einum stað með auknu framboði annars staðar. Óvissa um framboð eða verulegar verðbreytingar hafa bein áhrif á rekstrarhæfi greinarinnar í heild. Á meðan áburðarverð virðist að einhverju leyti hafa náð jafnvægi til skemmri tíma, ríkir veruleg óvissa um þróun eldsneytismarkaða á næstu misserum. Þetta er frábrugðið þeirri stöðu sem ríkti í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu árið 2022. Þá var að einhverju leyti unnt að mæta skorti með aukinni framleiðslu annars staðar í heiminum. Nú á það ekki lengur við með sama hætti, sérstaklega þegar um er að ræða hráefni á borð við eldsneyti eða áburð. Í þessu samhengi er oft bent á að stór hagkerfi á borð við Bandaríkin og Kína standi betur að vígi. Þau hafa í auknum mæli lagt áherslu á að tryggja eigin aðfangakeðjur, bæði með innlendri framleiðslu og markvissri stefnumótun. Í Evrópu hefur þróunin hins vegar verið önnur. Þar hefur framleiðslugeta á sumum sviðum minnkað án þess að fullnægjandi lausnir hafi komið í staðinn á sama hraða. Ísland stendur ekki utan þessarar þróunar. Þrátt fyrir sérstöðu í orkuframleiðslu er landið háð innflutningi á lykilaðföngum á borð við eldsneyti og áburð. Birgðir af slíkum vörum eru jafnframt takmarkaðar í samanburði við það sem víða þekkist. Þetta þýðir að breytingar á alþjóðlegum mörkuðum geta haft hraðari og beinni áhrif hér en ella. Þessi þróun hefur strax áhrif á ákvarðanir í framleiðslu landbúnaðarafurða. Hærra verð og aukin óvissa um aðgengi að aðföngum leiða til þess að bændur endurmeta bæði notkun og tímasetningar. Þar með færist áhættan inn í sjálfan reksturinn, ekki aðeins í verðlag á mörkuðum. Þessi nýja staða þýðir að aðföng sem áður var litið á sem sjálfsögð eru nú ýmist vandfengin eða hafa hækkað verulega í verði. Það hefur bein áhrif á rekstrarforsendur landbúnaðar. Spurningin er ekki hvort ný áföll muni koma heldur hvernig við erum í stakk búin til að takast á við þau. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Landbúnaður Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Sjá meira