„Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Bjarki Sigurðsson skrifar 27. apríl 2026 12:47 Haraldur Benediktsson sagði upp sem bæjarstjóri Akraness til að leiða lista Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit. Vísir/Ívar Fannar Oddvitaefni Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit segir það ekki tortryggilegt að hann hafi sagt upp sem bæjarstjóri Akraness til að fara í framboð. Hann sé ekki í framboði til að sameina sveitarfélögin eins og mótframbjóðendur hafa gefið í skyn.
Íbúahreyfingin í Hvalfjarðarsveit hefur gefið í skyn að framboð Haralds Benediktssonar, oddvitaefnis Samhentrar sveitar, sé tortryggilegt þar sem í bæjarstjóratíð hans á Akranesi hafi bærinn óskað eftir viðræðum við Hvalfjarðarsveit um sameiningu sveitarfélaganna. Hvalfjarðarsveit hafnaði viðræðunum. Í grein í Skessuhorni sögðu sjö efstu sæti Íbúahreyfingarinnar öfl á Akranesi ásælast Hvalfjarðarsveit, mögulega vegna góðs fjárhags sveitarfélagsins. Hann hefur styrkst síðustu ár vegna öflugrar starfsemi á Grundartanga. Haraldur segir ásakanir og framgöngu mótframbjóðanda sorglega og dapra. „Þarna er vegið að mér og minni æru með því að segja að ég sé einhvers konar flugumaður bæjarstjórnar Akraness og reynt að mála upp þá mynd að ég sé að ganga erinda Akraneskaupstaðar. Mér finnst það dapurlegt. Ég er fæddur og uppalinn í þessu samfélagi í Hvalfjarðarsveit. Ég fékk þennan tíma sem bæjarstjóri á Akranesi sem ég er mjög þakklátur fyrir en fyrst og fremst er hugur minn í því að starfa fyrir mitt samfélag og heimasveit. Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga svo ekki sé meira sagt,“ segir Haraldur. Gerð verður skoðanakönnun meðal íbúa sveitarinnar um sameiningu samhliða sveitarstjórnarkosningum. „Það er alveg skýr vilji og stefna framboðsins sem ég tilheyri að Hvalfjarðarsveit verði áfram sjálfstætt sveitarfélag. En við höfum sagt skýrt að íbúarnir ætla að tala í þessari könnun og við munum hlýta niðurstöðu hennar og vinna með hana, hver sem hún verður,“ segir Haraldur. Oddvitaefni Íbúahreyfingarinnar vildi ekki tjá sig um málið þegar óskað var eftir því.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hvalfjarðarsveit Sveitarstjórnarmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira