Kópavogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 28. apríl 2026 08:31 Þann 16. maí kjósum við ekki aðeins um fulltrúa til að stýra Kópavogsbæ næstu ár, heldur um stefnu, hugarfar og framtíðarsýn. Við kjósum um hvort við ætlum að sitja hjá eða taka skref fram á við. Kjörorð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eru skýr: Kópavogur í sókn. En hvað þýðir það í raun? Að vera í sókn er ekki bara slagorð – það er ákvörðun. Það er hugarfar sem felur í sér að þora þegar aðrir hika, að taka frumkvæði í stað þess að bíða og að móta framtíðina í stað þess að láta aðstæður móta okkur. Að vera í sókn þýðir að byggja upp samfélag þar sem lífsgæði íbúa eru í forgrunni. Samfélag sem einfaldar daglegt líf, styður við fjölskyldur og tryggir sterka og áreiðanlega grunnþjónustu. Það þýðir líka að reka bæinn af ábyrgð – halda fasteignagjöldum í lágmarki og tryggja hagkvæman rekstur sem skilar sér til íbúa. Sókn felst í því að fjárfesta í því sem skiptir mestu máli. Öflugir skólar eru hornsteinn samfélagsins, þar sem árangur og velferð nemenda fara saman. Þjónusta við barnafjölskyldur þarf að vera stöðug og traust, þar sem Kópavogsmódelið heldur áfram að þróast með þarfir fólks í huga. Við viljum samfélag þar sem vellíðan er ekki aukaatriði heldur leiðarljós – þar sem lýðheilsa er í forgrunni fyrir alla aldurshópa og þar sem aðstæður styðja við hreyfingu, útiveru og virkni í daglegu lífi. Að vera í sókn þýðir líka að daglegt líf gangi upp. Samgöngur þurfa að vera raunhæfar og skilvirkar, þannig að fólk komist leiðar sinnar án óþarfa flækjustigs. Um leið viljum við efla samfélagsandann með viðburðum og bæjarhátíð árlega sem tengir íbúa saman og styrkir samkennd. Framsýni skiptir sköpum. Við ætlum að byggja upp lifandi miðbæjarkjarna í Hamraborg og Smáranum, efla menningar- og lýðheilsukjarna í efri byggðum og þróa aðlaðandi útivistarsvæði fyrir fjölskyldur. Skipulag, húsnæði, skólar og innviðir eiga að vera skrefi á undan – ekki á eftir. Að vera í sókn er líka að sækja tækifæri. Við viljum laða að nýjar hugmyndir, fyrirtæki og fjárfestingu sem styrkir samfélagið og skapar fleiri tækifæri fyrir íbúa. En sókn felur jafnframt í sér ábyrgð: að taka skynsamlegar, sjálfbærar ákvarðanir sem tryggja jafnvægi og traustan rekstur til framtíðar. Við ætlum ekki að staðna. Við ætlum að vera ákveðin, horfa fram á við og móta framtíð Kópavogs af krafti – þannig að bærinn verði áfram eftirsóknarverður fyrir allar kynslóðir. Þann 16. maí er valið skýrt: Kópavogur í sókn. Höfundur er bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Ásdís Kristjánsdóttir Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira