Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar 4. maí 2026 11:47 Eitt umdeildasta fyrirbæri hér á landi sem annars staðar er skólakerfið. Við virðumst geta röflað út í hið óendanlega um hvort að það eigi að kenna kynfræðslu, flagga fánum, nota síma eða spjaldtölvur, nota bókstafi eða tölustafi, og hvort að við séum að standa okkur nógu vel í PISA könnunum. Oft hefur komið upp sú umræða um hvort að uppfæra ætti aðalnámskrár, óháð flokkslínum. Oftast fylgir þó ekki sögunni um hvað á að uppfæra. Þess í stað fylgja óljósar yfirlýsingar um að kennarar eigi að vinna meira og blanda eigi nemendum aftur í tossabekk og fyrirmyndarbekk. Ég held að við getum öll verið sammála um að breytinga er þörf. Þrjú ár eru nú liðin síðan að ég hætti í grunnskóla en ennþá hef ég sterkar skoðanir á starfsemi þeirra. Ég ætla því að punkta hér niður þær áherslur sem ég hef að leiðarljósi þegar að ég er spurður um afstöðu mína til skólastigsins. Kennum grunninn Eins og felst í nafninu á grunnskóli að kenna grunninn og framhaldsskóli á að kenna framhaldið. Ekki allir nemendur fara í framhaldsskóla, sumir fara að vinna, aðrir fara erlendis. Því taldi ég það segja sig sjálft að grunnskóli á að búa nemendur undir lífið og allt sem því fylgir. Framhaldsskóli á þá að kenna ítarefni. Því miður er það ekki þannig. Í mörgum grunnskólum fá fög eins og fjármálalæsi og skyndihjálp að víkja fyrir algebru og Gísla sögu Súrssonar. Ábyrgðinni er velt yfir á framhaldsskólastigið sem að getur ekki alltaf staðið undir skuldbindingunum. Hættum að veltast yfir PISA könnunum. Förum að kenna fög sem raunverulega gagnast í lífinu. Fjármálalæsi, skyndihjálp. Kennum umburðarlyndi og fræðum um minnihlutahópa. Aukum vægi lestrarkennslu og stuðlum að sköpun ungmenna. Svo getum við aukið inngildingu með því að kenna grunn í íslensku táknmáli, svo dæmi séu tekin. Það hefði mér þótt skemmtilegt, hefði það verið í boði. Við getum rifist um kynfræðslu út í hið óendanlega en í grunninn á það bara að snúast um að við eigum að virða mörk og sýna sjálfum okkur og öðrum virðingu. Það er eitthvað sem ungmenni kalla eftir. Horfum fram á veginn Síminn á ekki heima í skólum en við eigum samt sem áður ekki að henda tækninni úr kennslustofum. Ég hef hvorki heyrt um vinnustað né nokkurn framhalds- eða háskóla sem flettir upp í bókum og handskrifar gögn. Notum spjaldtölvunar, þær gagnast. Innleiðum fartölvur á efri stigum. Nei, bækur eiga ekki undir högg að sækja þó farin sé þessi leið. Staðreyndin er sú að prentaðar bækur eru almennt ekki hannaðar til að geta hentað öllum, þær eru oft með smáu og illa skiljanlegu letri. Rafbækur eru stillanlegar, hægt er að velja bakgrunn, leturtegund, stærð leturs o.s.frv. Lesblint fólk er stór hópur af þjóðfélaginu og ég veit að í mínum bekk voru spjaldtölvunar guðsgjöf fyrir þá sem áttu erfitt með að lesa. Sagan skilar sér og það mun betur. Kennum ábyrga notkun gervigreindar. Hún er komin til þess að vera og er ekki að fara í bráð. Við þurfum að læra hvernig á að nota hana til þess að hjálpa okkur, koma með hugmyndir og styðja okkur, í stað þess að svindla. Fræðum um hætturnar á netinu. Fræðum um netsvik og hvernig á að forðast þau, tælingu og stafrænt ofbeldi. Því miður er þetta vaxandi þáttur í samfélaginu okkar. Ég fékk áfall þegar að ég sat inni í kennslustofu fyrir stuttu og spurt var hve margir hafa lent í stafrænni kynferðislegri áreitni. Allar stelpurnar réttu upp hönd. Við verðum að fækka uppréttu höndunum! Beislum tæknina í okkar þágu. Færum þjónustuna í skólana Gerum grunnskólana að alhliða miðstöð fyrir börn. Höfum hjúkrunarfræðing í fullu starfi sem getur beitt snemmtækri íhlutun og veitt grunnþjónustu. Fjölgum sérfræðingum í skólum. Þetta geta t.a.m. verið: sálfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, þroskaþjálfar, talmeinafræðingar, og fleiri. Þannig léttum við álagið á heilsugæsluna, komum í veg fyrir vandamál og stuðlum að farsæld og vellíðan barna. Búum þannig undir að nemendur fái allan þann stuðning sem þau þurfa í skólanum. Skóli án aðgreiningar getur nefnilega hentað börnum, ef rétt er staðið að því. Fjölgum sérdeildum í grunnskólum, þannig að börnin geti verið í bekk þegar að þau geta en í sérkennslu þegar þau þurfa. Í gamla skólanum mínum er starfrækt sérdeild fyrir einhverfa, þar sem að einhverfir nemendur sóttu þjónustu þegar þeir þurftu en voru í sterkum fögum með okkur hinum í bekk. Með því að færa þjónustuna í skólana minnkum við líka fordóma. Þá er þetta í takti við vilja fjölda aðila eins og Einhverfusamtakana. En þegar að aðstæður eru verulega flóknar, t.d. í tilfelli barna með miklar og flóknar stuðningsþarfir, þarf oft að leita í sérskóla. Fyrir mörg börn er aðeins einn valkostur í boði á höfuðborgarsvæðinu, Klettaskóli. Hann er löngu sprunginn. Nú fer þó að líða að opnun Korpuskóla, sem að rýmkar vissulega en leysir ekki vandann. Mér finnst sú staðreynd skýra dæmið að það getur verið gríðarlega óþægilegt fyrir fötluð börn frá Hafnarfirði og Garðabæ að sitja í bíl í mikilli umferð til þess að komast í Fossvoginn og til baka, hvað þá í Grafarvoginn. Skólarnir eru þeirra Stuðlum að lýðræði innan skóla. Skólaráð og skólaþing eru sameiginlegir vettvangar nemenda, kennara, starfsfólks, foreldra og yfirvalda. Höldum skólaþing á a.m.k. árs fresti þar sem stefna skólanna er lögð. Hættum að ræða málin í skotgröfum og færum þau á diplómatískt plan. Berum virðingu fyrir skoðunum barna. Skólarnir eru fyrir börnin, ekki kennara eða foreldra. Búum þannig undir í skólakerfinu að börnin eigi sviðið. Að þau læri, leiki og þroskist í öruggu en um leið skilvirku umhverfi sem um ríkir gagnkvæm sátt. Leysum vandamál þegar þau koma upp. Horfum til framtíðar, því að við erum að búa börnin undir framtíðina. Framtíðina sem er þeirra. Höfundur er nemi og frambjóðandi á lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun