Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 7. maí 2026 11:00 Við Íslendingar vitum hvernig það er að berjast við náttúruna. Þess vegna skiptir saga Íslands máli langt út fyrir okkar eigin landamæri. Það er ótrúlegt til þess að hugsa þegar maður ferðast um gróskumikið og grösugt landið, að fyrir aðeins einni öld hafi víðáttumikil svæði verið alvarlega leikin af landeyðingu, bæði af náttúrunnar hendi og af mannavöldum. Ekki síst þegar litið er til þess að Ísland hafi við landnám, ef marka má Íslendingabók Ara fróða, verið „skógi vaxið milli fjalls og fjöru“. En ágangur mannsins, óblítt veðurfar og tíð eldgos urðu til þess að gróið land hopaði smám saman næstu aldir. Bændur sáu sig sums staðar tilneydda til að bregða búi og víða geisuðu sandstormar reglulega. En Íslendingar gáfust ekki upp. Við snerum vörn í sókn. Árið 1907 samþykkti Alþingi lög sem mörkuðu upphaf skipulagðrar landgræðslu á Íslandi. Það voru tímamót - ekki aðeins hér á landi heldur líka í alþjóðlegu samhengi. Með lögunum var viðurkennt að landeyðing væri samfélagslegt neyðarástand sem þyrfti að bregðast við með markvissum hætti. Og það tókst. Með þrautseigju, samvinnu og þekkingu tókst okkur smám saman að stöðva framrás sandsins og endurheimta land sem margir töldu glatað. Saga Íslands er því mikilvæg á tímum þar sem loftslagsbreytingar, eyðimerkurmyndun og hnignun vistkerfa ógna samfélögum víða um heim. Í dag eru um 40% landsvæða heimsins talin vera í hnignuðu ástandi. Reynsla okkar sýnir að þróunin er ekki óumflýjanleg. Að það er hægt að snúa við blaðinu. Endurheimt lands er forsenda sjálfbærrar framtíðar GRÓ - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem starfar undir merkjum UNESCO, byggir einmitt á þeirri hugsun að miðla þeirri þekkingu sem Ísland hefur öðlast á sviðum þar sem við höfum sjálf þurft að læra af reynslunni. Skólar GRÓ starfa á sviðum jarðhita, sjávarútvegs, jafnréttis og landgræðslu - allt svið sem skiptu sköpum í vegferð Íslands frá fátækt til velsældar. Landgræðsluskóli GRÓ var stofnaður árið 2007 og er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, og starfar í nánu samstarfi við Land og skóg. Árlega er sérfræðingum frá þróunarlöndum boðið til sex mánaða þjálfunar í endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu, þar sem sérþekkingu Íslands á þessu sviði er komið á framfæri. Frá upphafi hafa um 240 sérfræðingar frá 17 löndum í Afríku og Asíu útskrifast úr náminu. Öll eru þau fagfólk og gegna lykilhlutverkum í sínum heimalöndum. Þetta fólk snýr heim með þekkingu sem nýtist strax - við stefnumótun, rannsóknir, kennslu og verkefni sem skipta samfélög þeirra raunverulegu máli. Áhrifin af starfi Landgræðsluskóla GRÓ ná víða Áhrifin af starfi Landgræðsluskólans ná víða. Útskrifaðir nemendur vinna m.a. að endurheimt lands og að því að bæta jarðvegsgæði, m.a. með stuðningi við bændur til að auka framleiðni og aðlögunarhæfni að breyttum aðstæðum. Aðrir starfa innan stjórnkerfis og móta stefnu á landsvísu um landnýtingu, aðlögun að loftslagsbreytingum og endurheimt vistkerfa. Enn aðrir leggja sitt af mörkum til rannsókna, menntunar og svæðisbundins samstarfs og tryggja þannig að þekkingunni sé miðlað til annarra sem eykur auðvitað áhrifin enn frekar. Það segir sína sögu að útskrifaðir nemendur frá Malaví og Úsbekistan vinna nú að því að setja á fót meistaranám í endurheimtarfræðum að íslenskri fyrirmynd við háskóla í sínum heimalöndum. Mikilvægur árangur GRÓ skólanna Í vetur hefur á röð málþinga kastljósinu verið beint að árangrinum af starfi GRÓ skólanna fjögurra og því hvernig nemendur skólanna, sem eru samanlagt um 1.900 talsins, hafa nýtt þekkinguna til góðra starfa heima fyrir. Á viðburðunum hafa nemendurnir sagt frá því hvernig þau hafa geta nýtt reynsluna úr náminu til að stuðla að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna heima fyrir. Við getum svo sannarlega verið stolt af okkar stuðningi við þau. Á viðburði um Jarðhitaskóla GRÓ kom meðal annars fram að Kenía, stærsta samstarfsland skólans, er í dag sjötta stærsta jarðhitaland heims miðað við uppsett afl. Nemendur skólans hafa sjálfir lýst því hvernig þjálfunin sem þeir fengu hér á landi hafi skipt sköpum í þeirri uppbyggingu. Sjávarútvegsskóli GRÓ hefur sömuleiðis stutt við sjálfbæra nýtingu fiskistofna í stóru fiskivötnunum í Afríku og Jafnréttisskólinn hefur styrkt sérfræðinga sem vinna að réttindamálum, stefnumótun og samfélagsbreytingum víða um heim. Þetta eru raunveruleg áhrif. Raunverulegar breytingar á lífi fólks. Þróunarsamvinna skilar árangri Við Íslendingar vorum sjálf eitt sinn meðal fátækustu þjóða Evrópu. Við þekkjum það af eigin raun hvað menntun, þekking og alþjóðlegt samstarf geta skipt miklu máli fyrir framtíð heillar þjóðar. Þess vegna eigum við ekki aðeins að segja okkar sögu, heldur líka miðla reynslu okkar áfram. Í dag er komið að nemendum Landgræðsluskólans til að segja frá sínu góða starfi. Þar mun gefast einstakt tækifæri til að heyra beint frá nemendum skólans um hvernig þekkingin sem þeir hafa aflað sér á Íslandi hefur nýst þeim við að takast á við áskoranir í heimalöndum sínum. Ég vil hvetja allt áhugafólk um alþjóðamál, þróunarsamvinnu, sjálfbæra nýtingu lands og loftslagsmál til að mæta eða fylgjast með í streymi. Með því að fjárfesta í þekkingu, færni og fólki er lagður grunnur að sjálfbærri framtíð. Þróunarsamvinna skilar raunverulegum og varanlegum árangri – fyrir einstaklinga, samfélög og heiminn allan. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viðburðurinn Frá þekkingu til þróunaráhrifa: Endurheimt vistkerfa og sjálfbær landnýting, fer fram í Þjóðminjasafni Íslands kl. 12-13.15 þann 7. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun