Við þurfum öll á hjúkrun að halda Helga Rósa Másdóttir skrifar 12. maí 2026 07:32 Í dag, 12. maí, er alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga og jafnframt fæðingardagur Florence Nightingale, sem gjarnan er kölluð fyrsti hjúkrunarfræðingurinn. Florence var vel menntuð kona sem helgaði líf sitt hjúkrun og umbótum í heilbrigðisþjónustu. Hún beitti tölfræðilegum gögnum til að sýna fram á gagnsemi meðferða og vinnubragða og sýndi meðal annars með afgerandi hætti að sjúklingum farnaðist betur þegar þeir sem sinntu þeim gættu að hreinlæti, hreinsuðu hendur sínar, tryggðu góða næringu og ferskt loft. Á grunni rannsókna og vísinda stendur hjúkrunarfræði enn í dag. Hjúkrunarfræðingar sinna störfum sínum á grunni gagnreyndrar þekkingar um hvaða aðferðir reynast bestar til að hjúkra fólki til heilsu. Mikilvægi vísinda og þekkingar í hjúkrunarfræði hefur alltaf verið ótvírætt og þörfin fyrir góða menntun hjúkrunarfræðinga hefur aldrei verið meiri en nú. Starfið krefst bæði þekkingar á nýrri tækni, meðferðum og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og skilnings á félagslegum, menningarlegum og umhverfislegum þáttum sem hafa áhrif á heilsu fólks. Hjúkrunarfræðingar þurfa að geta sinnt fjölbreyttum skjólstæðingum, stýrt þverfaglegu samstarfi og endurspeglað það samfélag sem þeir starfa í. Viðfangsefni hjúkrunarfræðinga breytast stöðugt í takt við samfélagsþróun. Fjölgun aldraðra, aukning lífsstílssjúkdóma, fleiri langvinn fjölveikindi og þörf fyrir aukna sérhæfingu kallar á nýjar lausnir og öra þekkingarþróun hjúkrunarfræðinga. Á sama tíma skapa stríð, fólksflutningar, loftslagsbreytingar, náttúruhamfarir og skautun í samfélaginu nýjar áskoranir sem krefjast menningarfærni og þekkingar á fjölbreyttum heilsufarsvanda. Því er afar brýnt að menntun hjúkrunarfræðinga sé öflug og vönduð. Hjúkrunarfræðingar á Íslandi hafa lengi verið í fremstu röð á heimsvísu og notið mikils trausts. Hjúkrunarfræði var færð á háskólastig hér á landi fyrir rúmlega 50 árum, fyrst Evrópulanda og í fyrra fagnaði Tímarit hjúkrunarfræðinga 100 ára afmæli sem gerir það að einu elsta tímariti landsins. Frá upphafi hafa íslenskir hjúkrunarfræðingar verið frumkvöðlar sem sýnt hafa dug, metnað og þor til þess að vera í fararbroddi og veita bestu mögulegu hjúkrun sem völ er á. Sá metnaður sést vel í því hvernig hjúkrunarfræðingar hafa nýtt aukin tækifæri til starfsþróunar síðasta ár. Umsóknum í Starfsþróunarsetur hjúkrunarfræðinga fjölgaði um 80% milli ára eftir að framlag til þess var aukið í síðustu kjarasamningum. Það endurspeglar sterkan vilja stéttarinnar til að efla þekkingu sína með það markmið að auka gæði og öryggi hjúkrunar sem þeir veita. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga telur rúmlega 4.000 starfandi hjúkrunarfræðinga og um 90% þeirra starfar hjá hinu opinbera við margskonar störf. Í þessari öflugu stétt felast gríðarleg verðmæti fyrir íslenskt samfélag og heilbrigðiskerfi sem mikilvægt er að nýta til fulls. Í dag höldum við upp á alþjóðlegan dag hjúkrunarfræðinga. Ég hvet fólk til að staldra við og rifja upp síðasta augnablikið sem það mætti hjúkrunarfræðingi við störf. Því hjúkrunarfræðingar snerta á flestum stigum lífsins og samfélagsins í heild, frá vöggu til grafar, eins og segir svo fallega í nýrri auglýsingu okkar hjúkrunarfræðinga. Við þurfum öll á hjúkrun að halda! Til hamingju með daginn hjúkrunarfræðingar! Höfundur er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Helga Rósa Másdóttir Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar