Skemmdarvargarnir skildu eftir manifesto Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. maí 2026 12:00 Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir starfsfólk miður sín. Vísir/Vilhelm Skemmdarvargar sem brutust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi skildu eftir manifesto, svokallaða stefnuyfirlýsingu á staðnum. Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir aðkomuna hafa verið ljóta og nýr veruleiki blasi við fyrirtækjum í matvælaframleiðslu hér á landi. „Eignatjónið er kannski aukaatriði í þessu, en að skapa svona aðstæður og skemma umhverfi dýranna og valda þeim þjáningu og sársauka, það er ófyrirgefanlegt,“ segir Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss. Hann segir að þeir telji að brotist hafi verið inn um nóttina á milli eitt og tvö. Í tilkynningu frá Stjörnugrís í morgun kom fram að verksummerki bendi til þess að brotið hafi verið framið undir yfirskini dýravelferðar. Geir segir að bréf hafi verið skilið eftir á vettvangi sem gefið hafi þetta til kynna. Hvað kom fram í þessu bréfi? „Þetta var eitthvað manifesto. Lögreglan er með þetta bréf, en ég tjái mig ekki um það hvað stóð í því á þessu stigi málsins,“ segir Geir sem bætir því þó við að engar kröfur hafi verið lagðar fram í bréfinu. Geir segir að öryggisgæsla á svæðinu verði alfarið endurmetin, en hún hafi hingað til verið lítil sem engin. „Þetta er náttúrulega nýr veruleiki sem er kominn upp og menn hafa áhyggjur af þessari þróun, bæði bændur og búalið og jafnvel fleira og að sjálfsögðu munum við bregðast við í framhaldi. Það er greinilega ekki nóg að hafa læstar hurðir og tryggja þannig öryggið, það þarf að vera eitthvað annað sem kemur til, því miður.“ Hann segir ljóst að innbrotið muni valda fyrirtækinu töluverðu tjóni á næstunni. „Þetta á náttúrulega eftir að koma í ljós á næstu dögum og vikum hvaða áhrif þetta hefur vegna þess að þegar er farið inn í svona bú og sköpuð þvílík ringulreið og gengið á öryggi dýranna, þá mun það hafa áhrif á framleiðsluna á næstu vikum.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Reykjavík Dýr Matvælaframleiðsla Lögreglumál Mest lesið Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Innlent Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Innlent Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Innlent Skemmdarvargarnir skildu eftir manifesto Innlent Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Innlent Kannast þú við Tommy? Innlent Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Innlent Þetta er stefna flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík Innlent Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Erlent Loftleiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu Innlent Fleiri fréttir Kópavogsbær segir skilaboðin ekki af pólitískum toga Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Vill að flokkar sýni á spilin fyrir sveitarstjórnarkosningar um sölu á orkuinnviðum Skemmdarvargarnir skildu eftir manifesto Innbrot hjá Stjörnugrís og ólga meðal flugmanna Óskar sjálfur eftir brottvísun Helgi Bjartur áfrýjar til Landsréttar Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Loftleiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu Þetta er stefna flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Kannast þú við Tommy? Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Kvæðið Lilja og Grettissaga meðal dýrgripa sem Svíar lána til Íslands Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitarfélaginu í dag Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt Rekstraraðilar á Ártúnshöfða lýsa upplausnarástandi vegna borgaryfirvalda Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi „Það er ekki leiðtogi“ Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Handtóku konu vopnaða hnífi Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Lítið mál að halda jafnvægi á 4.500 króna sófa Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Sjá meira
„Eignatjónið er kannski aukaatriði í þessu, en að skapa svona aðstæður og skemma umhverfi dýranna og valda þeim þjáningu og sársauka, það er ófyrirgefanlegt,“ segir Geir Gunnar Geirsson framkvæmdastjóri Stjörnugríss. Hann segir að þeir telji að brotist hafi verið inn um nóttina á milli eitt og tvö. Í tilkynningu frá Stjörnugrís í morgun kom fram að verksummerki bendi til þess að brotið hafi verið framið undir yfirskini dýravelferðar. Geir segir að bréf hafi verið skilið eftir á vettvangi sem gefið hafi þetta til kynna. Hvað kom fram í þessu bréfi? „Þetta var eitthvað manifesto. Lögreglan er með þetta bréf, en ég tjái mig ekki um það hvað stóð í því á þessu stigi málsins,“ segir Geir sem bætir því þó við að engar kröfur hafi verið lagðar fram í bréfinu. Geir segir að öryggisgæsla á svæðinu verði alfarið endurmetin, en hún hafi hingað til verið lítil sem engin. „Þetta er náttúrulega nýr veruleiki sem er kominn upp og menn hafa áhyggjur af þessari þróun, bæði bændur og búalið og jafnvel fleira og að sjálfsögðu munum við bregðast við í framhaldi. Það er greinilega ekki nóg að hafa læstar hurðir og tryggja þannig öryggið, það þarf að vera eitthvað annað sem kemur til, því miður.“ Hann segir ljóst að innbrotið muni valda fyrirtækinu töluverðu tjóni á næstunni. „Þetta á náttúrulega eftir að koma í ljós á næstu dögum og vikum hvaða áhrif þetta hefur vegna þess að þegar er farið inn í svona bú og sköpuð þvílík ringulreið og gengið á öryggi dýranna, þá mun það hafa áhrif á framleiðsluna á næstu vikum.“ Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Reykjavík Dýr Matvælaframleiðsla Lögreglumál Mest lesið Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Innlent Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Innlent Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Innlent Skemmdarvargarnir skildu eftir manifesto Innlent Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Innlent Kannast þú við Tommy? Innlent Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Innlent Þetta er stefna flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík Innlent Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Erlent Loftleiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu Innlent Fleiri fréttir Kópavogsbær segir skilaboðin ekki af pólitískum toga Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Vill að flokkar sýni á spilin fyrir sveitarstjórnarkosningar um sölu á orkuinnviðum Skemmdarvargarnir skildu eftir manifesto Innbrot hjá Stjörnugrís og ólga meðal flugmanna Óskar sjálfur eftir brottvísun Helgi Bjartur áfrýjar til Landsréttar Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Innbrot og skemmdarverk hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt Loftleiðir á lúxusþotum á Norður-Atlantshafinu Þetta er stefna flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Kannast þú við Tommy? Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Kvæðið Lilja og Grettissaga meðal dýrgripa sem Svíar lána til Íslands Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitarfélaginu í dag Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt Rekstraraðilar á Ártúnshöfða lýsa upplausnarástandi vegna borgaryfirvalda Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi „Það er ekki leiðtogi“ Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Handtóku konu vopnaða hnífi Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Lítið mál að halda jafnvægi á 4.500 króna sófa Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Sjá meira