„Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. maí 2026 12:02 Eva Bryndís Helgadóttir er lögmaður og formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík. vísir/vilhelm Kjörstjórnir um allt land eru nú í óðaönn við að undirbúa kjörstaði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem styttist óðfluga í. Óteljandi handtök gera kosningar mögulegar en formaður yfirkjörstjórnar stærsta sveitarfélagsins segir nýja kjörkassa auðvelda þeim lífið.
Það má segja að kjörstjórnir um allt land séu nú á lokasprettinum enda aðeins þrír dagar til stefnu og þá fer frídagur í hönd á morgun. Rúmlega 300 þúsund manns eru á kjörskrá og verður gengið í kjörklefa á laugardag í 57 sveitarfélögum. Kjördeildirnar eru 293 en í fjórum sveitarfélögum er aðeins einn listi í framboði og því sjálfkjörið. Eva Bryndís Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjavíkur, segir allt að verða reiðubúið fyrir stóra daginn. „Það er allt á áætlun og í mörg horn að líta. Við erum með 24 kjörstaði og það eru 98 kjördeildir. Þannig að það þarf að setja þetta allt saman upp og útbúa öll fylgigögn þannig að allir hafi þetta við hendina.“ Til að mynda þarf að flytja ógrynni af alls konar gögnum um allar trissur. „Það þarf náttúrulega kjörkassa, það þarf atkvæðaseðla og kjörskrá og skriffæri. Svo þarf náttúrulega að gefa öllu fólkinu að borða og mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn, því þetta er löng vakt.“ Hvað er heilaga meðalið á kjördag fyrir starfsmenn? „Það er náttúrulega hið klassíska prins póló inn á milli en svo auðvitað gefum við staðgóða málsverði á matmálstímum.“ Nýir kjörkassar verða teknir í gagnið í fyrsta skipti um helgina. Plastkassar taka við viðarkössum. „Helsti kosturinn við nýju kassana er að þeir eru léttir og miklu meðfærilegri en gömlu sem voru orðnir svolítið þungir. Mér líst bara mjög vel á kassana.“ Það þurfi býsna mörg handtök til að skipuleggja kosningar í höfuðborginni. „Það eru yfir 600 manns sem koma að því verkefni. Það má segja að þetta sé ein stærsta teymisvinna sem fyrirfinnst. Verð bara að nota tækifærið til þess að hrósa teyminu sem er okkur til aðstoðar. Þetta er náttúrulega bara algjör úrvalsdeild sem er hér að störfum,“ segir Eva sem reiknar með því að þó nokkrir verði að störfum á morgun, á uppstigningardag.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Sjá meira