Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 21:33 Oddvitar Viðreisnar, Vinstrisins og Samfylkingar þau Björg Magnúsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Pétur Marteinsson líta fjölda borgarfulltrúa misjöfnum augum. Vísir/Vilhelm Skiptar skoðanir eru á því meðal oddvita í kosningum til borgarstjórnar um fjölda borgarfulltrúa. Þeir eru nú 23 talsins en voru um árabil fimmtán. Einn oddvita segir um lýðræðismál að ræða en annar segir fjölda borgarfulltrúa þann mesta sem gerist hér á landi miðað við nágrannalöndin.
Þetta er meðal þess sem kom fram í kappræðum oddvita á Sýn. Þar voru frambjóðendur beðnir um að taka afstöðu með já og nei skiltum til málefna. Meðal annars þeirrar spurningar hvort borgarfulltrúar séu of margir? Þeim var fjölgað úr fimmtán í 23 árið 2017. Lýðræðisspurning eða að búa til ný verkefni? „Þetta er bara lýðræðisspurning,“ skaut Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Vinstrisins inn. Þá tók Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins til máls. „Þetta þekki ég bara mjög vel eftir að hafa verið formaður samtaka sem eru að vinna lífsbjargandi starf fyrir fólk og eiga stöðug samskipti við borgina. Ég verð var við það hvað borgarfulltrúar hafa mikið að gera og ef það á að fækka þeim þá bitnar það á ykkur, það bitnar á fólkinu í landinu.“ Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar skaut því þá inn að þau væru dugleg að búa til ný verkefni sem þurfi ekki endilega að sinna. „Þess vegna er líka ofsalega mikið að gera hjá þeim.“ Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata skaut því þá inn að fjölbreyttar raddir væru mjög mikilvægar. Þá tók Ari Edwald oddviti Miðflokksins til máls. „Það kom fram nýlega að miðað við fólksfjölda er Reykjavík með fimmtán sinnum fleiri borgarfulltrúa á launum heldur en meðaltal höfuðborga Norðurlanda,“ sagði Ari. Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar sagði þá á að stjórnsýslan væri allt öðruvísi þar og því væri þetta ekki alveg sambærilegt. Hægt er að sjá hvort borgarfulltrúar lyftu já eða nei spjöldum í málinu hér fyrir neðan.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira