Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. maí 2026 07:53 Streeting vill aftur inn í ESB. Getty/PA Images/Jeff Moore Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra Bretlands, segist munu sækjast eftir því að verða næsti formaður Verkamannaflokksins ef til formannskjörs kemur. Hann vill að Bretar gangi aftur í Evrópusabandið.
Streeting sagði af sér á dögunum og hefur kallað eftir því að forsætisráðherrann Keir Starmer víki, eftir afhroð Verkamannaflokksins í kosningum á dögunum. Flokkurinn tapaði um 1.400 sætum á landsvísu. Skömmu eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir fór orðrómur á flug þess efnis að Streeting myndi skora Starmer á hólm en til þess þarf hann stuðning 81 þingmanns. Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, er einnig sagður ásælast formannsstólinn en til þess að eiga möguleika þarf hann fyrst að komast á þing. Josh Simons, þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Makerfield, greindi frá því í síðustu viku að hann myndi segja af sér til að greiða leiði fyrir Burnham en Burnham mun þurfa að keppa um sætið við frambjóðanda Reform í kjördæminu. Burnham er almennt talinn myndu hreppa hnossið í mögulegu formannskjöri. Streeting sagði á ráðstefnu hugveitunnar Progress á laugardag að hann vildi sjá Breta ganga aftur í Evrópusambandið. Hann gagnrýndi Starmer fyrir að kæfa skapandi hugsun innan ríkisstjórnarinnar og stjórnkerfisins og sagði skort hafa á framtíðarsýn. Ráðherrann sagði Starmer hafa óttast árásir Íhaldsflokksins og því fetað kunnuglegar slóðir. Tekið hefði verið fyrir uppbyggilegar umræður og nýjar hugmyndir skotnar niður. Þá sagði Streeting mikilvægt að Verkamannaflokkurinn léti ekki draga sig niður með því að elta Reform eða Græningja hugmyndafræðilega, í þeirri von um að tryggja sér atkvæði fyrir næstu kosningar.
Bretland Evrópusambandið Brexit Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira