Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lovísa Arnardóttir skrifar 17. maí 2026 16:32 Oktavía Hrund er formaður Pírata. Vísir/Vilhelm Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir slæmt gengi flokksins í Reykjavík ekki þýða endalok hans. Flokkurinn missti báða fulltrúa sína.
Flokkurinn hafi einnig verið í kosningabandalagi í Borgarbyggð sem hafi gengið vel. Hán segir flokkinn nú stefna á að fara hringinn í kringum landið í sumar til að ræða við fólk um Evrópusambandsatkvæðagreiðsluna. Næstu daga ætli hán og aðrir á listanum að hvíla sig og svo taki við öflugt félagsstarf innan flokksins. Þau einbeiti sér fyrst að kosningunum í ágúst en svo taki við undirbúningur fyrir næstu þingkosningar. „Nú taka við nokkrir hvíldardagar, við þurfum að sofa, hitta fjölskylduna og fara í nokkur húsverk. Svo tekur við öflugt félagsstarf aftur,“ segir Oktavía. Hán óttast að niðurstöður í Reykjavík geti leitt til þess að í Reykjavík verði hættulegra að vera hinsegin og af erlendu bergi brotin. „Það er okkar hlutverk núna að tryggja að þeir samfélagshópar sem allajafna kjósa Pírata upplifi ekki skjálfta og ótta í sambandi við niðurstöður kosninga. Meirihluti án Miðflokks hefur öðruvísi afleiðingar fyrir það hlutfall Reykvíkinga sem er hinsegin og af erlendu bergi brotið. Það verður spennandi að sjá hvernig Hildur mótar þetta. Það er gott fólk innan flestra flokka og ég óska þeim flokkum sem fengu fulltrúa góðs gengis. Það var frábært að sjá Silju Sóleyju hljóta jákvæða kosningu og ég vona að henni gangi betur en forvera sínum,“ segir Oktavía og að hán hafi fulla trú á henni. Alls ekki endalok Pírata Oktavía segir þessa niðurstöðu í Reykjavík alls ekki boða endalok Pírata. „Ég hef búið stærstan hluta lífs míns erlendis og þegar svona niðurstöður koma opinberar það oft eitthvað sem íbúar hafa fundið fyrir í borgarlandinu og samfélaginu og það getur hrist verulega upp í fólki. Ég tel mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að efla flokksstarf Pírata. Við verðum staðurinn til að sækja skjól og stappa í fólk stálinu. Það á að vera gaman, gefandi og gott, bæði að taka þátt í pólitík og pólitísku starfi.“ Verði að spýta í lófana Næstu skref séu stjórnarfundur á morgun og svo taki við öflugt starf í sumar við að sannfæra landann um að greiða atkvæði með því að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. „Ég held að þetta hafi áhrif á niðurstöðu kosninga og þess vegna tel ég að þeir flokkar sem eru hlynntir lýðræðisútfærslu, sem er fyrst að spyrja þjóðina um aðildarviðræður og svo um aðild, þurfi að spýta í lófana til að tryggja að fólk skilji hvað eigi að kjósa um.“ Hán segir að frá því að ríkisstjórnin kynnti um kosninguna hafi komið fram mikið af misvísandi og röngum upplýsingum. „ Það er á ábyrgð flokkanna sem eru hlynntir íbúalýðræði að fólk viti og skilji málið betur. Að nú eigi aðeins að kjósa um hvort við eigum að hefja viðræður. Ég hlakka til að fara hringinn í sumar og spjalla við fólk sem annaðhvort hefur áhyggjur af þessu eða sem vantar upplýsingagjöf í sambandi við þetta.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Borgarbyggð Tengdar fréttir Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segja niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna áfellisdóm yfir ríkisstjórninni og vísbendingu um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer. 17. maí 2026 12:43 Hildur með pálmann í höndunum Sjálfstæðisflokkurinn situr í bílstjórasætinu eftir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í gær og getur ýmist myndað hægri meirihluta með Miðflokknum eða miðju hægri meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samfylkingin hefur aldrei fengið eins dræma kosningu í höfuðborginni og vinstri meirihluti er útilokaður. 17. maí 2026 06:34 Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Samkvæmt lokatölum í Reykjavík fær Sjálfstæðisflokkurinn níu borgarfulltrúa og getur enn myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokki eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn. 17. maí 2026 04:07 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segja niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna áfellisdóm yfir ríkisstjórninni og vísbendingu um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer. 17. maí 2026 12:43
Hildur með pálmann í höndunum Sjálfstæðisflokkurinn situr í bílstjórasætinu eftir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í gær og getur ýmist myndað hægri meirihluta með Miðflokknum eða miðju hægri meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samfylkingin hefur aldrei fengið eins dræma kosningu í höfuðborginni og vinstri meirihluti er útilokaður. 17. maí 2026 06:34
Lokatölur í Reykjavík: Sjálfstæðisflokkurinn nær níunda manni inn Samkvæmt lokatölum í Reykjavík fær Sjálfstæðisflokkurinn níu borgarfulltrúa og getur enn myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokki eða þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsókn. 17. maí 2026 04:07