„Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. maí 2026 09:10 Tryggja þarf loftkælingu á umönnunarheimilum og sjúkrahúsum á allra næstu árum, segja skýrsluhöfundar. Getty Sérfræðingar segja stjórnvöld á Bretlandseyjum munu þurfa að koma upp loftkælingu á öllum umönnunarheimilum og sjúkrahúsum á næstu tíu árum og í skólum á næstu 25 árum. Þeir segja hlýnun muni leiða til þess að úrræði á borð við að opna glugga, draga fyrir og rækta tré til að búa til skugga ekki lengur munu duga til.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Climate Change Committee (CCC) en þar segir einnig að stjórnvöld ættu að setja viðmið um hámarkshitastig fyrir vinnu, bæði innandyra og utandyra. Bretar þurfi að búa sig undir að hitastig hækki um tvær gráður fyrir árið 2050, þar sem líklega muni mistakast að takmarka hlýnun við 1,5 gráðu. Samkvæmt skýrslunni mun hitastig í hitabylgjum fara yfir 40 gráður fyrir 2025 alls staðar á Bretlandseyjum og þær munu vara lengur. Áætlað er að níu af hverjum tíu heimilum muni ofhitna og dauðsföllum af völdum hita fjölga um 10.000. Guardian hefur eftir Emmu Howard Boyd, prófessor við London School of Economics, að stjórnvöld ættu að taka hitaþol jafn alvarlega og ferskvatnsöryggi og flóðavarnir. Hingað til hafi það ekki fengið jafn mikla athygli þrátt fyrir að fólk sé þegar bókstaflega að deyja úr hita. Skýrsluhöfundar benda á að kostnaður vegna hlýnunar nemi nú þegar um 60 milljörðum punda á ári, meðal annars vegna uppskerubrests og tjóns af völdum flóða. „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til og verður fjarlægara eftir því sem árin líða,“ segja þeir.
Bretland Loftslagsmál Veður Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira