Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2026 12:11 Tryggvi Snær Hlinason stendur í ströngu á Spáni nú þegar styttist í úrslitakeppnina. getty/Marcin Golba Tryggvi Snær Hlinason og Elvar Már Friðriksson, lykilmenn íslenska landsliðsins, eru í afar jafnri baráttu með liðum sínum um síðustu lausu sætin í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.
Tryggvi fagnaði sætum sigri með Bilbao Basket gegn Girona í dag, 86-80, og þar með komst Bilbao úr 9. sæti upp fyrir Unicaja og La Laguna Tenerife, nýja liðið hans Elvars, í 7. sæti. Átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina og svo gæti farið að leikur Bilbao og Tenerife í lokaumferðinni á föstudaginn verði hreinn úrslitaleikur um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni. Liðin eru núna með jafnmarga sigra eða 18, einum sigri meira en Unicaja sem á hins vegar tvo leiki eftir, við Asisa Joventut á þriðjudaginn og svo við Baskonia í lokaumferðinni á föstudaginn. Ljóst er að tvö af þessum liðum (Bilbao, Tenerife og Unicaja) lenda í 7. og 8. sæti og komast í úrslitakeppnina, þar sem þegar er ljóst að liðið í 8. sæti mun mæta deildarmeisturum Real Madrid. Standings provided by Sofascore Tryggvi skoraði sjö stig í dag og hitti úr öllum skotum sínum en þar af voru þrjú af vítalínunni. Hann reif til sín samtals sex fráköst og gaf eina stoðsendingu. Leikurinn var afar jafn og spennandi. Bilbao var 73-72 undir þegar rúmar fimm mínútur voru eftir en skoraði næstu fimm stig og missti ekki forystuna eftir það.
Spænski körfuboltinn Körfubolti Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Sjá meira