Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sindri Sverrisson skrifar 27. maí 2026 22:02 Það andaði köldu á milli Xinyu Wang og Tamara Korpatsch á tennisvellinum í París í dag. Getty/Shi Tang Það var dramatískt andrúmsloft á Opna franska risamótinu í tennis í dag þegar hin þýska Tamara Korpatsch neitaði að taka í hönd Wang Xinyu eftir að sú kínverska hafði sakað Korpatsch um óheiðarleika.
Korpatsch endaði á að vinna leik þeirra í þremur settum (6-2, 2-6, 6-3) og komast í þriðju umferð mótsins. Eftir leikinn áttu þær Wang hins vegar í hvössum orðaskiptum og tókust ekki í hendur eins og hefð er fyrir á tennisvellinum. Xinyu Wang and Tamara Korpatsch got in an argument at the net after their match at Roland Garros. No handshake… tense scenes. 👀👀👀👀 pic.twitter.com/xxmbW9CROF— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) May 27, 2026 Deilan sneri að því að þegar Korpatsch skoraði sigurstig sitt í fyrsta setti þá taldi Wang að dómarinn hefði gert mistök og að boltinn hefði ekki lent utan endalínunnar. Wang fór yfir á vallarhluta Korpatsch til að kanna málið og fékk áminningu fyrir óíþróttamannslega hegðun en hún virtist sannfærð um að boltinn hefði ekki farið út fyrir línuna. Það andaði enn köldu á milli þeirra tveggja þegar leiknum lauk, eins og sjá má á myndböndum. Wang Xinyu received a code violation for stepping over to the other side of the court and arguing over a line call with Tamara Korpatsch. pic.twitter.com/Zlqmu0vFIv— TNT Sports (@tntsports) May 27, 2026 „Ég vildi ekki taka í höndina á henni vegna þess að mér fannst hún ósanngjörn. Hún var ósanngjörn með því að koma yfir á mína hlið, og ég er ekki ósanngjarn spilari,“ sagði Korpatsch samkvæmt BBC. Á opna franska mótinu, öfugt við hin þrjú risamótin, er ekki notast við tölvutækni til að meta hvort bolti hafi farið út fyrir línu heldur er hægt að sjá förin í leirnum sem spilað er á. „Við tókumst ekki í hendur því hún var ósátt varðandi boltaförin. Ég gat ekki sagst ætla að gefa henni stigið. Ég er frekar hissa því við höfum átt gott samband, við erum engir óvinir,“ sagði Korpatsch. „Ég held að hún hafi sagt eitthvað um að henni fyndist ég óheiðarleg eða eitthvað þannig en ég veit ekki hvernig það ætti að vera. Við vorum með einn besta dómarann á vellinum og ég veit í alvörunni ekki hvernig ég ætti að svindla. Það er fjöldi myndavéla á vellinum og það sést allt þar. Að mínu mati væri til skammar að svindla svona,“ sagði Korpatsch sem mætir Elinu Svitolina í næstu umferð.
Tennis Mest lesið Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Enski boltinn Fleiri fréttir Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Sjá meira