„Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Sindri Sverrisson skrifar 29. maí 2026 16:15 Luis Enrique og Vitinha fögnuðu sigri í Meistaradeild Evrópu fyrir ári síðan, þegar PSG vann Inter. Getty/Michael Regan Luis Enrique er fæddur sigurvegari, hetja í heimaborg sinni Gijón eftir afrekin sem leikmaður og þjálfari, og gæti á morgun unnið Meistaradeild Evrópu annað árið í röð með PSG.
Enrique fór úr því að vera smár og grannur fótboltastrákur á götum Gijón í að verða þjálfari sem stýrt hefur stórliðum Barcelona og PSG til sigurs í sterkustu félagsliðakeppni heims. Í myndbandi fyrir úrslitaleikinn, sem hefst klukkan 16 á Sýn Sport Viaplay á morgun, lýsa samferðamenn Enrique honum auk þess sem þjálfarinn ræðir um sína sýn á fótboltann og sinn gamla liðsfélaga úr Barcelona B, Mikel Arteta, sem líkt og Enrique ólst upp á Norður-Spáni. Myndbandið má sjá hér að neðan. Klippa: Sigurvegarinn Luis Enrique „Ég á frábærar minningar um hann. Einstakur, ungur maður. Vinnusamur með karakter og gæði, verulega góður miðjumaður,“ segir Enrique þegar hann lýsir keppinauti sínum í leiknum á morgun, Mikel Arteta. „Orkan sem hann [Arteta] býr yfir þegar hann deilir við dómarann eða fjórða dómarann, eða þegar hann stígur næstum inn á völlinn og það er eins og hann vilji spila… Hann hefur smitað leikmenn sína af þessari orku. Liðið er byggt upp í hans anda og að hans skapi,“ segir Enrique. Ljóst er að fólkið í Gijón, þar sem Enrique ólst upp, er afar stolt af sínum manni. „Enginn bjóst við þessu þegar ég var 19 ára leikmaður í varaliði Sporting Gijón. Ekki einu sinni ég sjálfur hefði trúað þessu. Þetta er það sem það að vera þjálfari snýst um. Að vísa leiðina. Ekki að bikurum heldur til að leikmenn verði hugrakkir, þori að vera besta útgáfan af sjálfum sér og bæti sig varnarlega. Jafnvel elsku amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel en ef þú vilt að leikmenn verjist vel þá verða þeir að setja allar tilfinningarnar í þetta og vera liðsmenn. Í því felst ástríða mín sem þjálfari og þetta er það sem ég nýt mest.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira