Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Sindri Sverrisson skrifar 30. maí 2026 11:33 Mikel Arteta þakkar Arsene Wenger fyrir það að vera sjálfur orðinn þjálfari Englandsmeistara og eiga möguleika á að vinna Meistaradeild Evrópu með Arsenal í dag. Getty/David Price Arsene Wenger treystir því að sinn gamli lærisveinn, Mikel Arteta, verði fyrsti þjálfarinn til að stýra Arsenal til sigurs í Meistaradeild Evrópu. Sjálfur komst Wenger grátlega nærri því í úrslitaleiknum gegn Barcelona árið 2006.
Úrslitaleikur Arsenal og PSG hefst klukkan 16 í dag og er á Sýn Sport Viaplay. Upphitun hefst þar klukkan 15:15. Á 22 árum sem þjálfari Arsenal fagnaði Wenger 10 stórum titlum, þar á meðal þegar liðið varð Englandsmeistari án þess að tapa einum einasta leik. Hann fékk hins vegar aldrei að fagna Evrópumeistaratitli og sér eftir því, eins og fram kemur í myndbandinu hér að neðan. Klippa: Wenger vonar að Arteta ljúki verkinu Wenger komst einu sinni með Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, gegn Barcelona árið 2006, en þá var markvörðurinn Jens Lehmann rekinn af velli eftir aðeins 18 mínútur fyrir brot á Samuel Eto‘o utan teigs. Ludovic Giuly skoraði en í stað þess að markið fengi að standa fékk Lehmann rautt spjald. „Þetta er eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei. Stærsta eftirsjáin er að við skyldum spila með 10 menn í úrslitaleiknum, í 70 mínútur. Á endanum töpuðum við 2-1, gegn úrvalsgóðu Barcelona-liði. Eftirsjáin er til staðar,“ sagði Wenger hreinskilinn. „Þegar maður hættir þá hugsar maður ekki um það sem maður hefur gert heldur það sem maður náði ekki að gera. Vonandi tekst það núna,“ sagði Wenger. Snertu bikarinn en vantar hann enn í safnið Hann fékk Mikel Arteta til Arsenal sem leikmann, árið 2011, og lagði þannig grunn að því sem liðið er orðið í dag. „Ég gerði hann að fyrirliða því hann var alltaf mjög alvarlegur. Hann var mjög einbeittur leikmaður, lagði sig allan fram, sýndi því áhuga hvernig liðið spilaði og var alveg heltekinn af fótbolta eins og Spánverjar geta verið. Hann var með persónuleika og sterka trú á það sem hann taldi rétt, og leiðtogahæfileika sömuleiðis. Þetta hjálpar honum mikið núna,“ sagði Wenger. Arteta segir Wenger hafa veitt sér innblástur. „Hann er aðalástæðan fyrir því hvar ég sit í dag,“ sagði Arteta. Lærifaðir hans vonar innilega að Arteta lyfti bikarnum í kvöld. „Þetta félag er í hjarta mínu. Ég vil að bikarinn fari á Emirates því það vantar hann í safnið. Við snertum hann – við vorum þrjátíu mínútum frá því að landa honum. Núna viljum við að þetta takist. Fótbolti er óútreiknanlegur og jafnvel eftir leiki er hann óútskýranlegur. Það getur allt gerst,“ sagði Wenger.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira