„Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sindri Sverrisson skrifar 30. maí 2026 21:45 Gabriel var skiljanlega miður sín með silfurverðlaunin um hálsinn í Búdapest í kvöld. Getty/Catherine Ivill Mikel Arteta segist hafa verið meðvitaður um að ef úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni í kvöld, í úrslitaleik PSG og Arsenal í Meistaradeild Evrópu, þá yrðu helstu vítaskyttur Arsenal farnar af velli.
Eberechi Eze og Gabriel klikkuðu báðir á sínu víti og PSG vann vítaspyrnukeppnina 4-3, eftir að staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Arteta segir að Gabriel hafi sjálfur sóst eftir því að taka síðustu spyrnu Arsenal. „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna. Við höfum undirbúið og æft þetta augnablik,“ sagði Arteta. „Vanalega myndu vítaskytturnar vera Bukayo [Saka], Martin [Ödegaard], Kai [Havertz], svo sannarlega. En við vissum að ef við færum í framlengingu og vítaspyrnukeppni þá yrðu vítaskytturnar aðrar. Maður verður að gera þetta á þessu augnabliki. Við vorum óheppnir að hafa ekki sömu nákvæmni og þeir í þetta sinn og þess vegna unnum við ekki,“ sagði Arteta. „Þetta hefði auðveldlega getað verið víti“ Spánverjinn benti á að ekki hefði miklu munað að Arsenal fengi vítaspyrnu í framlengingunni, þegar Noni Madueke féll við í baráttu við Nuno Mendes innan teigs. „Ég hef horft á öll vítin í þessari keppni á þessari leiktíð, á síðustu 72 tímum, til að skilja hvað er víti og hvað ekki. Þetta hefði auðveldlega getað verið víti,“ sagði Arteta. Hann fékk gult spjald fyrir mótmæli við því að ekki skyldi dæmt víti og það fékk Declan Rice einnig. Miðjumaðurinn sagði: „Ég hef ekki séð þetta aftur. Við fyrstu sýn á vellinum fannst mér hann vera á undan Nuno Mendes. Ég var hundfúll á þeim tíma því ég hélt að dómarinn myndi fara og skoða þetta en augljóslega var þetta ekki nógu skýrt til að vera vítaspyrna. Mér fannst það og það gerðu starfsliðið og varamannabekkurinn okkar líka,“ sagði Rice. „Maður verður að vera andlega klár allan leikinn til að mæta PSG. Þeir vildu að við færum út og spiluðum eins og Bayern spilaði gegn þeim [í undanúrslitunum] en það er það sem þeir vilja, þannig skora þeir 5-6 mörk gegn andstæðingum. Maður verður að vera virkilega seigur og með hugann við leikinn. Við uxum virkilega inn í leikinn og fengum nokkur færi. Við gerðum þá nánast óvirka. En þeir eiga heiður skilinn, frábær stjóri, frábært lið, frábærir einstaklingar. Þeir hafa tapað mikið í gegnum árin og nú er þeirra tími kominn. Við munum halda áfram að sækja að einhverju stóru,“ sagði Rice.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Arsenal FC Enski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira