Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 07:31 Kolbeinn Kristinsson fagnar sigri sínum gegn Pavel Sour. Þetta var tuttugasti bardagi Kolbeins og jafnframt tuttugasti sigurinn. Sýn Sport Kolbeinn Kristinsson hélt ferilskrá sinni sem atvinnuboxari flekklausri þegar hann vann Tékkann Pavel Sour með tæknilegu rothöggi á blóðugu boxkvöldi í Kaupmannahöfn. Frammistöðu Kolbeins má nú sjá á Vísi.
Bardagakvöldið var í beinni útsendingu á Sýn Sport í gærkvöld en þar fögnuðu báðir Íslendingarnir sem tóku þátt, Kolbeinn og Emin Kadri Eminsson, sigri. Þungavigtarbardagi Kolbeins og Sour var sérstaklega spennandi og líflegur eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Klippa: Kolbeinn vann Sour í blóðugum bardaga Strax í fyrstu lotu opnaðist skurður við annað auga Kolbeins sem síðan stækkaði þegar á leið, með tilheyrandi blóðbaði. Kolbeinn lét það þó ekki á sig fá og lumbraði á Sour sem sýndi hins vegar að hann gat þolað mikinn sársauka. Kolbeinn sló Tékkann ítrekað niður í fjórðu lotu en alltaf tókst honum að rísa upp aftur og halda áfram. Það var hins vegar í fimmtu lotu sem Kolbeini tókst að yfirbuga Sour sem á endanum kastaði inn hvíta handklæðinu eftir að hafa enn einu sinni fallið niður á gólfið. Þar með hefur Kolbeinn unnið alla tuttugu bardaga sína sem atvinnumaður og þar af fjórtán með rothöggi.
Box Mest lesið Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Sjá meira