Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. júní 2026 11:20 Sigmundur Davíð er formaður Miðflokksins. Vísir/Ívar Fannar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skort á aga og að hafa gefið markaðinum misvísandi skilaboð sem leiðir til hærri verðbólgu. „
Ef þeir hafa ekki aga til þess að gera það sem þarf, þá gerist ekki neitt,“ segir Sigmundur sem var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Heilbrigðiskerfið er orðið margfalt dýrara en það var, en er betri þjónusta en var fyrir tuttugu, þrjátíu árum. Ég er ekki svo viss um að fólki finnist það almennt. Svo er náttúrulega allt sem menn eru að tala um í pólitíkinni almennt, umferðin, innviðaskuldin út af umferðinni og húsnæðiskostnaðurinn, álag á heilbrigðiskerfið og kostnaðurinn er þar, kostnaður menntakerfisins og álagið þar. Þetta er náttúrulega allt afleiðingin af því að við höfum verið með stjórnleysi á landamærunum og Íslendingum hefur nánast ekkert fjölgað eða afar lítið undanfarin ár. Þannig að ekkert af þessu væri vandamál, þessi viðbótarkostnaður væri ekki kominn nema vegna þess að það hefur bæst við svo gríðarlegur fjöldi utan frá.“ Hann ítrekar orð sín um að ríkið muni ekki ná tökum á verðbólgu nema með aga í ríkisrekstri. Það sé svarið að mati Sigmundar, enda hafi margir hverjir hagfræðingar sagt að verðbólga sé eingöngu afleiðing af útgjöldum ríkisins. Endalausar deilur á versta tíma „Við sjáum stöðugt fréttir núna af uppsögnum, jafnvel fjöldauppsögnum og enn fleiri eru fyrirhugaðar. Atvinnuleysi er auðvitað óþægilega hátt hérna miðað við íslenska mælikvarða og inn í það blandast sú skekkja sem er orðin í kerfinu vegna þessa, frjálsa flæði vinnuafls sem hefur ekki alveg virkað sem skyldi af því að hér eru auðvitað töluvert meiri réttindi heldur en á vinnumarkaði í löndum í Mið- eða Austur-Evrópu,“ segir Sigmundur Davíð. Hann segir að með því sé hætta á að kerfið sé misnotað en tekur fram að það eigi þó ekki við um alla sem koma til Íslands til að vinna. „Þessar vísbendingar um að þessir hefðbundnu mælikvarðar á hagþróun, sem eru kannski ekkert spennandi umræðuefni en á endanum varða þeir líf almennings í landinu, séu meira og minna að þróast í ranga átt. Þess vegna finnst mér áhyggjuefni að við séum ekki með ríkisstjórn sem að gerir bara eins og hún lofaði fyrir kosningar og setji í efnahagsmálin og nái tökum á þeim í fyrsta, annað og þriðja sæti,“ segir hann. Þess í stað sé ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að steypa samfélaginu í „endalausar deilur um Evrópusambandið á versta hugsanlega tíma“. Það sé grundvallaratriði að senda merki um að vera boðberi stöðugleika, eitthvað sem Sigmundur sjálfur hafi verið meðvitaður um í tíð sinni sem forsætisráðherra árin 2013 til 2016. „Það var svo margt sem mann langaði að gera en þetta var það sem þurfti að fást á hreint frá byrjun, að þessi stjórn myndi halda aga í stjórn efnahagsmála.“ Verði að fara í gegnum allt kerfið Sigmundur tekur stöðu mála hvað varðar samgöngur sem dæmi. „Hvað höfum við heyrt oft núna að það þurfi að leggja auknar álögur á ýmist almenning eða fyrirtæki sem skila sér svo ekki?“ spyr hann. Nefnir hann kílómetragjaldið, veggjöld í Reykjavík sem eigi að fara í Borgarlínuna og eignir sem settar voru í Betri samgöngur, þar á meðal Keldnaland. „Það átti allt að fara í samgöngur en hefur ekki gert nema svona helmingur í gegnum tíðina. Ég gæti örugglega talið upp eitthvað fleira sem hefur verið nefnt, sem álagning á almenning, hækkanir á almenning, af því þurfi núna pening í innviðina. Svo tekur ríkið bara þessa peninga og sóundar þeim í eitthvað annað.“ Í stað þess að hækka skatta þurfi að spara á öllum sviðum. „Til að gera langa sögu stutta, þessu verður ekkert náð með því að loka einni stofnun. Nei, þú verður að fara í gegnum allt kerfið,“ segir Sigmundur.
Miðflokkurinn Bítið Bylgjan Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Sjá meira