Innlent

Eldur í vinnu­vél á Álfs­nesi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
2Q7A8083.jpeg
Vísir/Vilhelm

Eldur hefur komið upp í vinnuvél í Álfsnesi á Kjalarnesi. Reykjarmökkur sést víða að og lögregla og slökkvilið eru á vettvangi.

Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að eldurinn hafi komið upp í vinnuvél á Álfsnessvæðinu. Tilkynning barst upp úr hálf eitt.

Pálmi Hlöðversson vaktstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að slökkvistörf gangi vel. Verið sé að slökkva í glæðum og klára frágang. Hann segir eldurinn ekki hafa náð að breiða úr sér.

„Það eru alls konar haugar þarna í kring en þetta virðist hafa sloppið.“

Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Dofra Ólafssyni, samskiptastjóra Sorpu, er um að ræða eld sem kom upp í timburhakkara á athafnasvæði Sorpu. 

Vísir/Vilhelm
Aðsend
Vísir/Vilhelm



Vísir/Vilhelm



Vísir/Vilhelm

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×