Viðskipti erlent

Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot

Agnar Már Másson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa
Elkjøp, sem er upprunalega norskt vörumerki, rekur verslanir um öll Norðurlönd. Verslanirnar nefnast Elko á Íslandi, Elding í Færeyjum, Elgiganten í Danmörku og Svíþjóð, Giganten í Finnlandi, og Pisifik á Grænlandi. Á Íslandi er Elko í eigu Festi.
Elkjøp, sem er upprunalega norskt vörumerki, rekur verslanir um öll Norðurlönd. Verslanirnar nefnast Elko á Íslandi, Elding í Færeyjum, Elgiganten í Danmörku og Svíþjóð, Giganten í Finnlandi, og Pisifik á Grænlandi. Á Íslandi er Elko í eigu Festi. Elkjøp

Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu.

Persónuverndaryfirvöld í Noregi greindu frá þessu í tilkynningu í síðustu viku en sektin nemur 20 milljónum norskra króna (262 milljónum íslenskra króna).

Málið tengist úttekt sem persónuverndaryfirvöld gerðu íjúní 2022 hjá Elkjøp Nordic AS og Elkjøp Norge AS, sem reka 400 verslanir á Norðurlöndum, eftir að persónuverndaryfirvöldum þar bárust tilkynningar um brot á persónuverndarlögum og kærur og ábendingar um viðskiptavinaklúbb fyrirtækisins.

Að sögn norska eftirlitsins hafði Elkjøp ekki fengið gilt samþykki til þess að vinna úr persónuupplýsingum vildarklúbbsmeðlima en einnig segir eftirlitið félagið hafa enn ekki gert nauðsynlegar breytingar á vinnslu persónuupplýsinga.

Elkjøp hafi heldur ekki svarað beiðnum viðskiptavina um réttindi sín innan frestsins sem persónuverndarlöggjöfin kveður á um, að sögn norskra persónuverndaryfirvalda.

Upphæðin er ákvörðuð með hliðsjón af veltu samstæðunnar sem Elkjøp er hluti af. Þrátt fyrir að gjaldið sé hátt í krónum talið er það, að sögn Persónuverndar, lágt miðað við veltu samstæðunnar.

Ákvörðun kunni að gæta

Í tilkynningu kom fram að norsk yfirvöld hefðu unnið með persónuverndarstofnunum á Norðurlöndum. Raftækjaverslunin Elko á Íslandi, sem er í eigu fjárfestingafélagsins Festi, er með sérleyfissamning við norska félagið.

Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar á Íslandi, segir aftur á móti í svari við fyrirspurn Vísis að Persónuvernd á Íslandi hafi ekki haft beina aðkomu að málinu.

„Ákvörðun í málinu er eingöngu tekin í Noregi, þótt áhrifa hennar kunni að gæta annars staðar á Norðurlöndunum þar sem Elkjøp er með starfsemi.“ Þar sem Elkjøp Nordic og Elkjøp Norge AS hafi höfuðstöðvar í Noregi fari norska persónuverndarstofnunin með leiðandi hlutverk í eftirlitinu í þessu tilviki.

„Þegar svona háttar til (þ.e. þegar höfuðstöðvar fyrirtækis eru annars staðar á EES-svæðinu en ákvörðunin getur haft þýðingu fyrir íbúa í öðru EES-landi) hefur Persónuvernd heimildir til þess að fylgjast með málinu og koma athugasemdum á framfæri við drög systurstofnunar sinnar að ákvörðun í því (þ.m.t. ákvörðun um að leggja á sekt). Þær heimildir voru hins vegar ekki nýttar í þessu tilviki,“ skrifar Helga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×