Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Aron Guðmundsson skrifar 10. júní 2026 07:30 Gunnlaugur Árni er á leið á sitt fyrsta risamót í golfi. Aðeins tvítugur er kappinn og hefur hann komist hærra á heimslista áhugakylfinga en nafntogaðir kylfingar á borð við Scottie Scheffler, nú efsta kylfinginn á heimslistanum, og Ludvig Aberg þegar þeir voru á sama aldri og Gunnlaugur. Vísir/Samsett Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér í fyrradag, fyrstur Íslendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki eftir bráðabana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsérfræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunnlaugi, bara byrjunin.
U.S. Open er eitt af fjórum risamótum ársins í golfheiminum þar sem að 66 bestu kylfingum í heimi er boðið að taka þátt. Þá reyndu 714 kylfingar að vinna sér inn sæti í gegnum úrtökumót. Gunnlaugur Árni var einn af þeim fjörutíu og þremur kylfingum sem tryggðu sér sæti á risamótinu í gegnum úrtökumótið. Á sínum stutta ferli til þessa er hann kominn lengra en þekktir kylfingar þegar þeir voru á sama aldri og Íslendingurinn. „Hve stórt er þetta? Ef við reynum að setja þetta í samhengi gagnvart frægum nöfnum í heiminum. Gunnlaugur Árni er tvítugur. Hann er búinn að ná lengra heldur Ludvig Åberg og Viktor Hovland til dæmis þegar að þeir voru áhugamenn. Hann hefur náð hæst áttunda sæti á heimslista áhugamanna,“ segir golfsérfræðingurinn Þorsteinn Hallgrímsson í samtali við íþróttadeild Sýnar en Gunnlaugur vermir nú sautjánda sæti listans. Kemur ekki á óvart „Ef við setjum þetta í samhengi þá var hann í apríl árið 2024 í sæti 1100. Sem segir okkur hvað þetta hefur gerst hjá honum. Scottie Scheffler. Efsti maður heimslistans. Þegar að hann var tvítugur þá hafði hann ekki náð svona hátt á heimslista áhugamanna. Þetta er, í samhengi í golfheiminum, alveg gríðarlega stórt.“ Scheffler færir hér Rory McIlroy græna jakkann fyrir sigur á Masters. Það hefur ekki vafist fyrir köppunum tveimur að vinna risamótin. Nú verður Gunnlaugur Árni á sama móti á þeir en Scheffler var eitt sinn á þeim stað sem Íslendingurinn finnur sig nú á.Vísir/getty Eftirtektarverður árangur en þess ber að geta að ferill Scottie Scheffler átti heldur betur eftir að fara á flug og risatitlar hrannast inn. Hann, líkt og Gunnlaugur Árni, vann sér inn þátttökurétt á sínu fyrsta U.S. Open móti tvítugur, nokkrum dögum fyrir 21 árs afmæli sitt. Ferill Åberg er ekki kominn eins langt en tvö mót hefur hann unnið á PGA mótaröðinni. Og Gunnlaugur er bara tvítugur. „Hann er bara tvítugur. Hann á rosalega bjarta framtíð fyrir sér og við sem þekkjum til og fylgjumst með. Þetta kemur okkur ekkert á óvart. Þetta hefur verið svolítið tímaspursmál hvenær hann myndi stíga upp og spila á risamóti. Auðvitað var maður náttúrulega spenntur í fyrrakvöld. En kom mér þetta á óvart? Nei.“ Eitt erfiðasta risamótið að komast inn á Gunnlaugur Árni þarf fljótt að átta sig á veruleikanum því U.S. Open hefst í næstu viku í beinni útsendingu á Sýn Sport. Risamótið er eitt það erfiðasta sem fyrir finnst í golfheiminum. „Uppsetningin á US Open er yfirleitt kvikindisleg. Völlurinn er erfiður, karginn er hækkaður mikið, brautirnar þrengdar og völlurinn gerður mjög krefjandi. Þetta er eitt erfiðasta risamótið að komast inn á. Að komast inn á þetta mót er stórkostlegt afrek. En það kæmi mér ekki á óvart ef hann myndi gera vel í mótinu sjálfu.“ Hvaða þýðingu myndi það hafa? „Ef hann spilar vel á U.S. Open, og nú erum við komnir svolítið fram úr okkur, en þá er ekkert ósennilegt að hann fái boð á mót á PGA mótaröðinni. Þetta styrkir stöðu hans sem áhugakylfings. Það eru fleiri sem fylgjast með honum. Það eru sextán áhugakylfingar af þessum 144 kylfingum sem taka þátt á U.S. Open í ár. Hann er einn af þeim. Það verða allra augu á honum.“ Gunnlaugur Árni er að ná frábærum árangriGetty/Aitor Alcalde U.S. Open er eitt stærsta skrímslið í golfheiminum. „Það er ekki hægt að bera þetta saman við venjulegt mót á PGA mótaröðinni. Spennustigið er margfalt hærra. Þetta eru þau mót þar sem að allra bestu kylfingar í heimi stefna á að vera á sínu besta golfi.“ Bara að byrja Gunnlaugur Árni hefur verið að standa sig afspyrnu vel í háskólagolfinu í Bandaríkjunum með liði LSU. Kappinn er með hausinn skrúfaðan rétt á. „Svo má ekki gleyma því að metnaðurinn liggur alltaf fyrst og fremst hjá íþróttamanninum sjálfum. Það vantar ekki hjá Gulla hvað hann hefur verið duglegur að æfa. Það þarf ekki að segja honum að fara æfa. Þurfti ekki að segja honum þegar að hann var í framhaldsskóla að vakna klukkan fimm á morgnanna og fara æfa. Hann bara gerði það.“ „Hann er bara á vegferð. Þetta er engin endastöð hjá honum. Hann er að byrja. Hann er með stór markmið og hann á svo sannarlega að vera með stór markmið. Miðað við hve góður hann er og hvað umhverfið er gott í kringum hann. Við eigum eftir að sjá mikið frá Gunnlaugi Árna.“ U.S. Open hefst á fimmtudaginn í næstu viku og fer fram á Shinnecock Hills Golf Club vellinum í Southampton í New York fylki. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn Sport.
Opna bandaríska Golf Íslendingar erlendis Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Foreldrarnir að rifna úr stolti: Gunnlaugur manifestaði birtu eftir erfitt vor Golf HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Fleiri fréttir Foreldrarnir að rifna úr stolti: Gunnlaugur manifestaði birtu eftir erfitt vor Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Gunnlaugur aðeins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn Dagbjartur og Gunnlaugur spila um sæti á risamóti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð Andrea og Ragnhildur enduðu jafnar Andrea býr hjá breskri fjölskyldu sem styður hana til sigurs Komin sjö mánuði á leið en spilar samt á Opna bandaríska Ragnhildur og Aron Snær unnu Korpubikarinn Mikil spenna fyrir lokahringinn Ragga frábær í Austurríki og náði öðru sæti Gunnlaugur Árni náði stórum áfanga Þrjár frá Íslandi jafnar í þriðja sæti Rory reiður: „Grjóthaltu kjafti“ Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Aron fagnaði sigri eftir bráðabana Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ „Við erum alltaf að gefa í“ „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Sjá meira