Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sigurgeir Þorkelsson skrifar 10. júní 2026 17:44 Fimm áru eru liðin frá því málið kom fyrst upp. vísir/vilhelm Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi.
Steina var ákærð fyrir að hafa banað sjúklingi á geðdeild Landspítala árið 2021 með því að hella næringardrykk upp í munn hans. Sjúklingurinn var kona á sextugsaldri. Hæstiréttur telur að málið hafi verulega almenna þýðingu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og ábyrgð þess að lögum við alvarlegar og krefjandi aðstæður. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sagt áhrif dómsins á stéttina vera gríðarleg. Málið hefur velkst um dómskerfið en Landsréttur ógilti fyrri dóm Héraðsdóms. Honum hafi borið að skoða hvort Steina hefði gerst sek um manndráp af gáleysi. Ákæruvaldið hafði upprunalega aðeins ákært fyrir manndráp af ásetningi en ekki gert varakröfu um sakfellingu um manndráp af gáleysi. Það var síðan í lok febrúar þessa árs að Landsréttur sakfelldi Steinu fyrir manndráp af gáleysi. Henni var þó ekki gerð refsing. Lögmaður hennar, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lýsti þá yfir að dóminum yrði áfrýjað til Hæstaréttar. Vilhjálmur segir að brotið hefði verið á grundvallarréttindum skjólstæðings síns til réttlátrar málsmeðferðar. Til að mynda sé óeðlilegt að Landspítalinn komi bæði að málinu sem sá aðili sem tilkynnti málið upprunalega til lögreglu og sá sem framkvæmdi réttarkrufningu á hinni látnu.
Andlát á geðdeild Landspítala Landspítalinn Heilbrigðismál Dómsmál Tengdar fréttir Sakfelling Steinu staðfest Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing. 26. febrúar 2026 15:08 Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur sýndi af sér stórfellt gáleysi þegar hún hellti næringardrykk upp í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði. 4. desember 2024 16:11 Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut sinn í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing. 2. desember 2024 10:54 Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira
Sakfelling Steinu staðfest Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing. 26. febrúar 2026 15:08
Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur sýndi af sér stórfellt gáleysi þegar hún hellti næringardrykk upp í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði. 4. desember 2024 16:11
Steina sakfelld fyrir manndráp af gáleysi Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut sinn í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing. 2. desember 2024 10:54