„Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 18. júní 2026 14:36 Hólmsteinn situr í tunnu í mastri öðru skipsins. Vísir/Vilhelm og aðsend Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu masturs á hvalveiðiskipi við Reykjavíkurhöfn til að mótmæla hvalveiðum. Hann veit ekki hversu lengi hann getur verið uppi. Hann er með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Hann segist ekki vita hvað annað hann getur gert til að mótmæla hvalveiðum. „
Ég bara veit ekki hvað annað ég get gert. Lögreglan kom og fór áðan. Nokkrir úr áhöfninni töluðu við mig,“ segir Hólmsteinn í samtali við Vísi um stöðuna og hvort einhver hafi talað við hann frá því hann fór upp. Samkvæmt sjónarvottum er nú unnið að því að losa landfestar. Hólmsteinn segist líklega ekki fara niður nema sjálfviljugur því það sé erfitt að taka menn úr tunnunni. Hann segist ekki vita hvenær það verði eða við hvaða aðstæður. Hólmsteinn skipulagði mótmælin einn. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið óskað eftir aðkomu lögreglu að mótmælunum. „Við fórum, ræddum við þá sem málið snýr að og það var ekki óskað eftir aðkomu lögreglu að þessu,“ segir hann. Verður dæmdur Sams konar mótmæli fóru fram sumarið 2023 í aðdraganda þess að hvalveiðiskipin fóru út. Í febrúar á þessu ári voru þær Anahita Babaei og Elissa May Philipps sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip í mótmælaskyni árið 2023 og dæmdar til 200 þúsund króna sektargreiðslu. „Ég verð alveg örugglega dæmdur. Ég veit ekki hvað annað er hægt að gera.“ „Það er sorglegt að hér eru menn sem þurfa að fæða fjölskyldu sína og þeir fá borgað fyrir þetta. Hvað annað eiga þeir að gera og hvað annað á ég að gera? Kerfið setur okkur upp á móti hvorum öðrum,“ segir hann. Hann segist meðvitaður um að mótmæli hans stöðvi líklega ekki skipið heldur tefji það frekar. „Þetta mun ekki stoppa þetta skip, þegar ég fer þá fer skipið. En ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum, sumir gera þetta, aðrir skrifa, aðrir tala. Það er fallegt að allir geri það sem þeir geta,“ segir hann. Hólmsteinn segist ekki mjög vel undirbúinn til að vera uppi um langa hríð. Hann hafi heyrt af því að skipin færu út í dag og hann hafi því ákveðið að drífa sig af stað. Hann lét engan vita af fjölskyldu sinni og telur að það hefði verið heldur óhjálplegt því þau voru ekki að fara með honum. „Hjálpumst að við að koma betur fram við allt og alla. Ef það er eitthvað sem ég er að gera sem skaðar aðra þá vil ég hjálp við að stoppa það, ég er mannlegur og geri mistök og geri mér ekki alltaf grein fyrir því að ég er að skaða aðra,“ segir hann og að hann vilji endilega vita ef mótmæli hans skaða aðra. Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum lögreglunnar.
Hvalveiðar Hvalir Dýraheilbrigði Dómsmál Lögreglumál Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Sjávarútvegur Tengdar fréttir Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Fulltrúar Landhelgisgæslunnar munu fylgjast ferðum skipaáhafnar aðgerðasinnans Paul Watson, en skip á hans vegum er á leið til landsins í þeim tilgangi að stöðva hvalveiðar. Formaður Hvalavina styður ekki aðgerðir Watson en segir það mikil vonbrigði að atvinnuvegaráðherra hafi ekki bannað veiðarnar. 16. júní 2026 13:00 Kompásar stilltir fyrir komandi hvalveiðar Lokaundirbúningur hvalvertíðar stendur yfir hjá Hval hf. og í dag var hvalbátunum tveimur, Hval 8 og Hval 9, siglt úr Reykjavíkurhöfn og um Faxaflóa í nokkrar klukkustundir. Töldu kunnugir að verið væri að prufukeyra gufuvélarnar og stilla kompása. 15. júní 2026 22:44 Hvalbátarnir halda á veiðar undir helgina Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 sigldu í dag út í Faxaflóa. Bátarnir eru báðir komnir aftur í höfn eftir að vélarnar voru keyrðar og gengið úr skugga um að allt væri í standi fyrir stórhvalaveiðarnar fram undan. 15. júní 2026 19:09 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira
Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Fulltrúar Landhelgisgæslunnar munu fylgjast ferðum skipaáhafnar aðgerðasinnans Paul Watson, en skip á hans vegum er á leið til landsins í þeim tilgangi að stöðva hvalveiðar. Formaður Hvalavina styður ekki aðgerðir Watson en segir það mikil vonbrigði að atvinnuvegaráðherra hafi ekki bannað veiðarnar. 16. júní 2026 13:00
Kompásar stilltir fyrir komandi hvalveiðar Lokaundirbúningur hvalvertíðar stendur yfir hjá Hval hf. og í dag var hvalbátunum tveimur, Hval 8 og Hval 9, siglt úr Reykjavíkurhöfn og um Faxaflóa í nokkrar klukkustundir. Töldu kunnugir að verið væri að prufukeyra gufuvélarnar og stilla kompása. 15. júní 2026 22:44
Hvalbátarnir halda á veiðar undir helgina Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 sigldu í dag út í Faxaflóa. Bátarnir eru báðir komnir aftur í höfn eftir að vélarnar voru keyrðar og gengið úr skugga um að allt væri í standi fyrir stórhvalaveiðarnar fram undan. 15. júní 2026 19:09