Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júní 2026 09:33 Diego Maradona leiddi Argentínu til heimsmeistaratitilsins árið 1986. Getty/ Jean-Yves Ruszniewski Gervigreindin býður upp á ýmislegt, meðal annars að fá dáið fólk til að leika í auglýsingum.
Argentínska þjóðin er núna í uppnámi vegna gervigreindar Maradona. Diego Maradona lést árið 2020 en nú sést hann aftur – í veðmálaauglýsingu sem hefur vakið mikla reiði í Argentínu. „Ef nota á ímynd Diego ætti það að vera fyrir eitthvað jákvætt,“ sagði Rocío Oliva, síðasta maki fótboltastjörnunnar. Myndskeiðið er sýnt í argentínsku sjónvarpi í hléum á leikjum heimsmeistaramótsins. ⚽️ EL DIEGO EN IAIndignación por la aparición de Maradona en una publicidad de apuestashttps://t.co/6DEIDN6GEC— bardeonews (@bardeonews) June 15, 2026 Í því sést gervigreindargerð útgáfa af Maradona, með því útliti sem hann hafði á HM 1986 í Mexíkó – sama ár og hann skoraði hið fræga mark með „hönd guðs“. „Strákar, það er kominn tími til að sýna af hverju þið eruð með svona stór eistu. Og ef heimurinn vill koma og höggva af okkur fæturna, þá skulum við sýna þeim að hér spilum við með bolta,“ segir hann í veðmálaauglýsingunni. Hvatningin til argentínska karlalandsliðsins í fótbolta hefur vakið upp gagnrýnisraddir í landinu vegna sérkennilegs orðalags. Þetta er þrátt fyrir að auglýsingin sé sögð hafa verið samþykkt af tveimur dætrum fótboltagoðsagnarinnar, sem lögmaður dætranna staðfestir við dagblaðið Clarín. 💥🇦🇷 ¡Polémica con Maradona! Se usa su imagen generada con IA para promocionar apuestas... y con el permiso de la propia familia🗣️ "Si usan la imagen de Diego que sea para algo lindo" #FIFAWorldCup https://t.co/9bPYQm2DUq— Antena 3 Noticias (@A3Noticias) June 19, 2026 Ákvörðunin virðist þó ekki hafa stuðning allra barna hans – þar sem Janna Maradona, Diego Jr og Diego Fernando eru sögð hafa talið auglýsinguna óviðeigandi. Það finnst einnig síðasta maka Maradona, Rocío Oliva, sem lýsti óánægju sinni við América TV. „Ef nota á ímynd Diego ætti það að vera fyrir eitthvað jákvætt sem börn geta haft til fyrirmyndar,“ segir hún. Argentína vann opnunarleik sinn á HM 3–0 gegn Alsír. Næst á dagskrá er Austurríki á mánudag áður en liðið spilar við Jórdaníu í síðustu umferð riðlakeppninnar.
HM 2026 í fótbolta Argentína Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira